Rangfærslur „fagráðs“ um velferð dýra Árni Alfreðsson skrifar 3. júlí 2023 08:01 Fagráð um velferð dýra birti nýverið (16. júní s.l.) skýrslu eða álit sitt varðandi hvalveiðar. Á þessu áliti byggir matvælaráðherra tímabundið bann við hvalveiðum. Álitið eru tæpar tvær gisnar síður. Í þessum örfáu setningum þá kemst fagráðið að merkilega mörgum rangfærslum. Rangfærslur sem eru til þess gerðar að gera þetta álit að marklausu plaggi. Meginrök fagráðsins byggir á skýrslu MAST frá vertíðinni 2022. Skýrsla MAST hefur fengið falleinkunn frá dýralækninum Egil Øen, helsta sérfræðingi heims í aflífun hvala. Vegna aðferðafræði MAST sem eingöngu byggir á misgóðum myndbandsupptökum frá illa þjálfuðum aðilum á vegum Fiskistofu. Engin vönduð skoðun var gerð á dýrunum né krufning þegar í land var komið. Úrtakið 58 dýr. Makalaus yfirsjón MAST. 2014 þá stýrði umræddur Egil Øen rannsókn á dauðtíma langreyða. Settar voru upp öflugar myndavélar í mastri hvalbátanna og um borð var mjög reyndur norskur dýralæknir, Sérfræðingur í aflífun húsdýra og hvala. Hann fylgdist með úti á sjó og sá jafnframt um ítarlega skoðun og krufningu á dýrunum þegar í land var komið. Niðurstaða þessarar rannsóknar voru að 84% dýranna voru dauðskotin. 16% eða 8 dýr tók 6,5-15 mín að deyða (miðgildi 8 mín.). Úrtakið 50 dýr. Þrátt fyrir mikla annmarka á rannsókn MAST má fullyrða að margt hafi gengið á afturlöppunum á vertíðinni 2022. Niðurstöður MAST voru upphaflega að 59% hvalanna hafi verið dauðskotin en það fært upp í 67% eftir athugasemdir Egil Øen. Og þarna voru tveir hvalir sem tók einn til tvo tíma að deyða. Engan veginn ásættanlegt. Fagráðið fyllyrðir engu að síður að ekkert bendi til að hægt sé að gera betur en á vertíðinni 2022 þar sem aðeins 59-67% dýranna voru dauðskotin og allt gekk á afturfótunum. Af hverju minnist fagráðið ekkert á mun betri og ítarlegri rannsókn sem greinir frá mun betri árgangri árið 2014? Hvernig leyfir fagráðið að fullyrða að ekki sé hægt að gera betur þegar til eru vísindaleg gögn sem benda til hins gagnstæða? Þetta er það fyrsta sem gerir skýrslu fagráðs marklausa litaða af fyrirfram gerðri niðurstöðu. Fagráðið rökstyður ennfremur ályktun sína um bann við hvalveiðum að mestu í fimm liðum. Förum yfir helstu rangfæsrlurnar/lygina. „Verið sé að veiða kýr með kálf sér við hlið“. M.ö.o. mjólkandi kýr með kálf á spena. Rangfærsla. Í fyrsta lagi er þetta bannað með lögum og við þessu liggja háar fjársektir. Það er algjör undantekning ef kýr með mjólk í júgrum komi á land í hvalstöðinni. Það þekkist hins vegar að kýr sem hafa nýlega hafa vanið kálf frá sér og af spena geti haft mjólk í júgrum. Eins og mæður úr mannheimum þekkja. Í þessum undantekningatilvikum þá hafa verið tekið vefjasýni sem rannsakað er. Í öllum tilvikum nema einu hefur tekist að staðfesta að kýrin hafi ekki verið með kálf á spena á s.l. 15 árum. Þetta eina tilvik sannar engan veginn að kýrin hafi enn verið með kálf sér við hlið. „Lífslíkur móðurlausra kálfa eru hverfandi“. Rangfærsla að því leyti að kýr með kálfa sér við hlið (á spena) eru ekki veiddar. „Stundum þurfi að fylgja hvalnum eftir í einhvern tíma til að veiða hann. Slíkt geti skapað ótta og streitu hjá dýrinu og dýrum í grennd“. Almennt séð þá breyta hvalir hegðun sinni lítið þó skip eða bátar séu nálægt þeim. Virðast hreinlega kæra sig kollótta. Hvalveiðar virka ekki þannig að hvalurinn sé á flótta. Þetta snýst einfaldlega um að vera á réttum stað þegar hvalurinn kemur upp. Ef þetta væri eitthvað stórt atriði þá þyrfti að banna alla hvalaskoðun við landið strax í dag. Við hvalaskoðun þá eru bátarnir oft á tíðum miklu nær dýrunum. Skipin/bátarnir margfalt fleiri en við hvalveiðar og hvalaskoðun er stunduð allan ársins hring. Ótti og streita er því margfalt meiri af völdum hvalaskoðunar en hvalveiða. Ef eitthvað er þá að marka þessa kenningu fagráðráðsins. „Ekki er hægt að tryggja skjótan dauðdaga langreyða“. Rangfærsla. Í rannsókn á dauðatíma langreyða hér við land 2014 þá drápust öll dýranna sem fengu skutul í brjóstholið samstundis. Þetta voru 84% dýranna í úrtakinu (50) sem þannig voru dauðskotin. 16% tók 6,5-15 mínútur að deyja (miðgildi 8 mín.) Vitnað er í grein Egil Øen dýralæknis helsta sérfræðings heims í aflífun hvala frá 2021. Fagráðið dregur út nokkrar setningar úr langri grein og segir að útfrá orðum hans megi álykta að ekki sé hægt að tryggja skjóta aflífun þó skutull hitti á rétt svæði (brjóstholið). Í greininni fer Egil Øen ítrekað yfir að hitti skutull rétt svæði (brjóstholið) tryggi það skjótan dauðdaga. Hann hefur haldið þessu fram í tugum vísindagreina gegnum árin. Hvernig í ósköpunm fagráðinu tekst að skrumskæla orð hans er mér hulin ráðgáta. Það er alveg sama hvar borið er niður í þessu örstutta áliti fagráðs, það er allt fullt af rangfærslum. Dylgjur og lygar. Sem allar virðast ætlaðar til þess að koma allra verstu mynd sem hugsast getur af hvalveiðum. Það hlýtur að þurfa opinbera rannsókn á því hverjir það voru sem komu með sumar þessar upplýsingar og hverning þær komust á blað Í viðtali í Kastljósi 8. maí þá minnist forstjór MAST ekki einu orði á þessa rannsókn frá 2014 af fyrra bragði. Það er spyrill Kastljós sem fær hana til að viðkenna tilvist hennar með semingi. Matvælaráðherra fullyrti stuttu seinna að skýrsla MAST væri fyrsta rannsókn á dauðatíma langreyða og fyrsta og eina rannsóknin sem sýndi þetta svart á hvítu. Af hverju öll þessi hylming og lygi? Það fór án efa margt úrskeiðis á vertíðinni 2022. Um það eru allir sammála. En að draga þessa skelfilegu vertíð fram sem einhvern loka sannleik er einfaldlega ekki sannleikanum samkvæmt. Menn geta haft ólíkar skoðanir á hvalveiðum. En þegar opinberir aðilar fara með staðlausa stafi, rangfærslur og lygar eða hvað menn vilja kalla ósannindi af versta toga þá þarf að staldra við. Opinberir aðilar geta ekki leyft sér það sem dýraverndunarsinnar halda fram með engri ábyrgð. Það þarf einfaldlega opinbera rannsókn á fullyrðingum þessa merka “fagráðs” um velferð dýra. Hver kom með sumar þessar lygar á borð fagráðsins? Og hvernig komst sumt af þessu á blað? Fagmennskunni er a.m.k. hvergi fyrir að fara. Höfundur er er líffræðingur (á sviði hvala). Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hvalveiðar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson Skoðun Villa um fyrir bæjarbúum Vilhjálmur Árnason Skoðun Bullandi hallarekstur í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson Skoðun Suður-Íslendinga sögurnar Hans Birgisson Skoðun Hættulegustu tækin í umferðinni Eva Hauksdóttir Skoðun Olíufyrirtækin vissu Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Af hverju ættum við að stunda geðrækt, rétt eins og líkamsrækt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun Styrkjum stöðu leigjenda Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Hvað myndi Sesselja segja? Hallbjörn V. Fríðhólm Skoðun Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi Jón Kaldal Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna – eitthvað sem mig varðar? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Af hverju ættum við að stunda geðrækt, rétt eins og líkamsrækt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Villa um fyrir bæjarbúum Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Olíufyrirtækin vissu Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Bullandi hallarekstur í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Styrkjum stöðu leigjenda Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Hættulegustu tækin í umferðinni Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi Sesselja segja? Hallbjörn V. Fríðhólm skrifar Skoðun Vaxtastefna Seðlabankans – á kostnað launafólks Hilmar Harðarson skrifar Skoðun Suður-Íslendinga sögurnar Hans Birgisson skrifar Skoðun Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela: Auðlindaránið í heimsvaldastefnunni og hræsnin í „stríðinu gegn fíkniefnum“ Sæþór Benjamín Randalsson skrifar Skoðun Stöndum vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna – opið bréf til borgarstjóra Sigrún Grendal skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi Jón Kaldal skrifar Skoðun Velkomin til Helvítis Guðný Gústafsdóttir skrifar Skoðun Olíuleit við Ísland? Hallgrímur Óskarsson skrifar Skoðun Hækka launin þín þegar fasteignamatið á íbúðinni þinni hækkar? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Hvað mun Pútín gera næst með því að ögra samstöðu NATO?: Rússnesk innrás í lofthelgi NATO og hlutverk Íslands í öryggi bandalagsins Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Manneklan er víða Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Sótt að hagsmunum atvinnulausra Steinar Harðarson skrifar Skoðun Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Launamunur kynjanna eykst – Hvar liggur ábyrgðin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn verður fórnarlamb Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gefum íslensku séns – að tala íslensku við alla Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Réttnefni: Viðbragð við upplýsingaóreiðu Jón Þór Sigurðsson skrifar Skoðun Farsæl framfaraskref á Sólheimum Sigurjón Örn Þórsson skrifar Skoðun Austurland – þrælanýlenda Íslands Björn Ármann Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin stöðluð - öryggisins vegna Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Frelsi, framtíð og vistvænar samgöngur: Hvers vegna Ísland þarf að hugsa stærra Sigurborg Ósk Haraldsdóttir skrifar Skoðun Atvinnustefna er alvöru mál Jóhannes Þór Skúlason skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju ættum við að stunda geðrækt, rétt eins og líkamsrækt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson skrifar
Skoðun Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela: Auðlindaránið í heimsvaldastefnunni og hræsnin í „stríðinu gegn fíkniefnum“ Sæþór Benjamín Randalsson skrifar
Skoðun Stöndum vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna – opið bréf til borgarstjóra Sigrún Grendal skrifar
Skoðun Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi Jón Kaldal skrifar
Skoðun Hvað mun Pútín gera næst með því að ögra samstöðu NATO?: Rússnesk innrás í lofthelgi NATO og hlutverk Íslands í öryggi bandalagsins Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson skrifar
Skoðun Gervigreindin stöðluð - öryggisins vegna Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar
Skoðun Frelsi, framtíð og vistvænar samgöngur: Hvers vegna Ísland þarf að hugsa stærra Sigurborg Ósk Haraldsdóttir skrifar