„Geta unnið Meistaradeildina án Mbappe“ Smári Jökull Jónsson skrifar 10. júlí 2023 08:31 Sagan endalausa um Kylian Mbappe heldur áfram. Vísir/Getty Fyrrum framkvæmdastjóri PSG segir að það sé kominn tími til að Kylian Mbappe yfirgefi félagið. Félagið telur að franska stórstjarnan sé búinn að ákveða að yfirgefa félagið frítt næsta sumar.
Framtíð Kylian Mbappe er í mikilli óvissu. Félag hans PSG vill að hann skrifi undir nýjan samning en núverandi samningur hans rennur út næsta sumar og getur hann þá yfirgefið frönsku meistarana frítt, Forráðamenn PSG vilja að sjálfsögðu ekki að það gerist og þar sem Mbappe virðist engan áhuga hafa á því að framlengja samning sinn ætla þeir sér að selja hann strax í sumar. Í síðustu viku var greint frá því að æðstu menn PSG haldi að Mbappe sé nú þegar búinn að ákveða að ganga til liðs við Real Madrid næsta sumar en auk Real Madrid hefur hann verið orðaður við bæði Liverpool og Arsenal en ólíklegt verður að teljast að þau félög hafi efni á hinum 24 ára gamla Mbappe. Hinn brasilíski Leonardo, fyrrum framkvæmdastjóri PSG, tjáði sig um málið í viðtali við L´Equipe. „PSG var til áður en Mbappe kom til sögunnar og mun gera það eftir að hann fer. Fimm félög hafa unnið Meistaradeildina á síðustu sex árum og ekkert þeirra var með Mbappe í sínum röðum. Það er algjörlega mögulegt að vinna keppnina án hans,“ sagði Leonardo sem hætti sem framkvæmdastjóri frönsku meistaranna árin 2011-2013. „Með hegðun sinni síðustu tvö árin hefur Mbappe sýnt að hann hefur ekki getuna til að leiða lið. Hann er frábær leikmaður, ekki leiðtogi. Hann er frábær markaskorari, hann býr ekki til mörk. Það er erfitt að byggja lið í kringum hann. PSG vegna held ég að það sé kominn tími á að hann fari, sama hvað.“ Annars er það að frétta af Mbappe að hann fór í ferðalag til Kamerún í síðustu viku þar sem hann tók þátt í góðgerðastarfi.
Franski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Dagskráin í dag: Verður markamet efstu deildar karla bætt? Sport „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Sjá meira