„Maður sá atburði sem maður á ekki að sjá inni á vellinum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2023 20:58 Bræðurnir Guðni og Hlynur Eiríkssynir þjálfa FH í sameiningu. vísir/hulda margrét Guðni Eiríksson, annar þjálfara FH, var ekki sáttur með frammistöðu síns liðs gegn Þór/KA, sérstaklega ekki í fyrri hálfleik. FH tapaði leiknum, 0-1. „
Þetta var erfiður fyrri hálfleikur, slakur af hálfu FH. Ég var nokkuð ánægður með hvernig liðið brást við í upphafi seinni hálfleiks og ég tek eitthvað út úr því,“ sagði Guðni við Vísi eftir leikinn. „En færanýting var arfaslök. Það er ótrúlegt að fá ekkert út úr þessu. Ég veit ekki hvað við áttum margar hornspyrnur en fyrir utan tvær vorum við ekki líklegar til að skora. Við fórum illa með stöður hér og þar á vellinum. Það vantaði ansi mikið upp á hjá FH í dag.“ FH byrjaði seinni hálfleikinn af nokkrum krafti og mark Þórs/KA kom kannski aðeins gegn gangi leiksins. „Ég var ánægður með hvernig liðið þó brást við og kom inn í seinni hálfleikinn af því sá fyrri var ekki nógu góður. Við fengum alveg færi þá en þær líka. Það var í raun ótrúlegt að staðan hafi verið 0-0 í hálfleik því leikurinn var nokkuð opinn. En 0-0 var raunin og þess vegna var ákveðið högg að fá á sig mark. Eins og ég sagði fyrir leik hélt ég að liðið sem myndi skora fyrsta markið yrði ofan á í leiknum og sú varð raunin,“ sagði Guðni. En hvað gekk svona illa hjá FH í fyrri hálfleik? „Mér fannst liðið ólíkt sjálfu sér í baráttu og vilja og löngun til að vinna boltann og tæklingar. Maður sá atburði sem maður á ekki að sjá inni á vellinum þar sem einn leikmaður labbar framhjá fjórum FH-ingum, í þrígang held ég. Það er ekki boðlegt. Leikmenn voru ólíkir sjálfum sér,“ sagði Guðni að lokum.
Besta deild kvenna FH Þór Akureyri KA Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira