FH með flest karakterstig en Blikar á botninum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. september 2023 14:40 FH-ingar fagna í sigri á Blikum fyrr í sumar. Vísir/Hulda Margrét FH-ingar eru með yfirburðarforystu á einum lista í Bestu deildar karla í fótbolta í sumar. Þeir hafa náð flestum stigum út úr leikjum þar sem þeir lenda undir. FH liðið hefur lent undir í sextán leikjum og náð í stig úr helmingi þeirra eða samtals sextán stig. FH hefur unnið fjóra leiki þar sem þeir hafa lent undir og náð jafntefli í fjórum til viðbótar. FH er með fimm stigum meira en næstu lið á listanum sem eru Fylkir og KA með ellefu karakterstig hvort. HK (10 stig) er síðan á undan Íslandsmeisturum Víkinga og Eyjamönnum. Á hinum endanum sitja Blikar einir og sér á botninum. Blikar hafa aðeins náð tveimur stigum út úr leikjunum þar sem þeir lenda undir. Blikar hafa lent undir í níu leikjum og tapað sjö þeirra. Liðið náði í jafntefli á móti Stjörnunni (1-1) og Víkingum (2-2). Blikar eru tveimur stigum á eftir KR-ingum sem sitja í ellefta og næstsíðasta sæti. KR hefur náð í stig út úr síðustu tveimur leikjum þar sem þeir hafa lent undir, á móti Víkingi og Val. 25. umferð Bestu deildar karla fer öll fram í dag. Dagurinn byrjar á leik KA og ÍBV sem verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 16.15. Hinir leikirnir fara allir fram klukkan 19.15. Leikur Vals og Breiðabliks verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og leikur Stjörnunnar og KR verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5. Hinir þrír leikirnir, Víkingur-FH, Fram-Keflavík og HK-Fylkir, verða sýndir á Bestu deildar stöðvunum. Stúkan verður síðan í beinni á Stöð 2 Sport frá klukkan 21.30. Flest karakterstig í Bestu deild karla (Stig úr leikjum þar sem liðið lendir undir) 1. FH 16 stig 2. Fylkir 11 stig 2. KA 11 stig 4. HK 10 stig 5. ÍBV 8 stig 5. Víkingur 8 stig 7. Valur 7 stig 8. Fram 6 stig 8. Keflavík 6 stig 8. Stjarnan 6 stig 11. KR 4 stig 12. Breiðablik 2 stig Besta deild karla FH Breiðablik Fylkir KA HK ÍBV Valur Fram Stjarnan KR Keflavík ÍF Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Enski boltinn Fleiri fréttir „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki Sjá meira
FH liðið hefur lent undir í sextán leikjum og náð í stig úr helmingi þeirra eða samtals sextán stig. FH hefur unnið fjóra leiki þar sem þeir hafa lent undir og náð jafntefli í fjórum til viðbótar. FH er með fimm stigum meira en næstu lið á listanum sem eru Fylkir og KA með ellefu karakterstig hvort. HK (10 stig) er síðan á undan Íslandsmeisturum Víkinga og Eyjamönnum. Á hinum endanum sitja Blikar einir og sér á botninum. Blikar hafa aðeins náð tveimur stigum út úr leikjunum þar sem þeir lenda undir. Blikar hafa lent undir í níu leikjum og tapað sjö þeirra. Liðið náði í jafntefli á móti Stjörnunni (1-1) og Víkingum (2-2). Blikar eru tveimur stigum á eftir KR-ingum sem sitja í ellefta og næstsíðasta sæti. KR hefur náð í stig út úr síðustu tveimur leikjum þar sem þeir hafa lent undir, á móti Víkingi og Val. 25. umferð Bestu deildar karla fer öll fram í dag. Dagurinn byrjar á leik KA og ÍBV sem verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 16.15. Hinir leikirnir fara allir fram klukkan 19.15. Leikur Vals og Breiðabliks verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og leikur Stjörnunnar og KR verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5. Hinir þrír leikirnir, Víkingur-FH, Fram-Keflavík og HK-Fylkir, verða sýndir á Bestu deildar stöðvunum. Stúkan verður síðan í beinni á Stöð 2 Sport frá klukkan 21.30. Flest karakterstig í Bestu deild karla (Stig úr leikjum þar sem liðið lendir undir) 1. FH 16 stig 2. Fylkir 11 stig 2. KA 11 stig 4. HK 10 stig 5. ÍBV 8 stig 5. Víkingur 8 stig 7. Valur 7 stig 8. Fram 6 stig 8. Keflavík 6 stig 8. Stjarnan 6 stig 11. KR 4 stig 12. Breiðablik 2 stig
Flest karakterstig í Bestu deild karla (Stig úr leikjum þar sem liðið lendir undir) 1. FH 16 stig 2. Fylkir 11 stig 2. KA 11 stig 4. HK 10 stig 5. ÍBV 8 stig 5. Víkingur 8 stig 7. Valur 7 stig 8. Fram 6 stig 8. Keflavík 6 stig 8. Stjarnan 6 stig 11. KR 4 stig 12. Breiðablik 2 stig
Besta deild karla FH Breiðablik Fylkir KA HK ÍBV Valur Fram Stjarnan KR Keflavík ÍF Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Enski boltinn Fleiri fréttir „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki Sjá meira