Nóbelsverðlaunahafinn Louise Glück er látin Atli Ísleifsson skrifar 16. október 2023 12:31 Louise Glück á viðburði árið 2016. AP Bandaríski rithöfundurinn og ljóðskáldið Louise Glück lést á föstudag, áttræð að aldri.
Glück hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2020 og sagði í rökstuðningi sænsku akademíunnar að hún hafi hlotið verðlaunin fyrir „augljósa skáldlega rödd sem geri tilvist einstaklingsins algilda með íburðarlausri fegurð“. Glück fæddist í New York árið 1943 og ólst upp á Long Island. Hún hefur verið talin eitt áhrifamesta ljóðskáld samtímans í Bandaríkjunum, en í verkum sínum fjallaði hún mikið um misheppnuð ástar- og fjölskyldusambönd. Síðustu ljóðabækur Glück voru Winter Recipes from the Collective, sem kom út árið 2021, og Faithful and virtuous night, sem kom út árið 2014, en hún hlaut hún fyrir hana verðlaunin National Book Award. Árið 2012 gaf hún út bókina Poems 1962-2012. Fyrsta ljóðabók hennar, Firstborn, kom út árið 1968. Hún hlaut Pulizer-verðlaunin árið 1993 fyrir The Wild Iris, eða Villtu sverðliljuna.
Bandaríkin Andlát Nóbelsverðlaun Menning Tengdar fréttir Louise Glück hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bandaríski rithöfundurinn Louise Glück hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. 8. október 2020 11:03 Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira
Louise Glück hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bandaríski rithöfundurinn Louise Glück hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. 8. október 2020 11:03