Kerið selt Árni Sæberg skrifar 16. október 2023 12:18 Óskar Magnússon og Ásgeir Baldurs við Kerið. Aðsend Arctic Adventures hefur keypt allt hlutafé í Kerfélaginu af Óskari Magnússyni, Ásgeiri Bolla Kristinssyni, Sigurði Gísla Pálmasyni og Jóni Pálmasyni, sem áttu hver sinn fjórðungshlut. Helsta eign Kerfélagsins er Kerið í Grímsnesi sem hefur lengi verið vinsæll áningarstaður ferðamanna, rómað fyrir náttúrufegurð og jarðfræðilega sögu.
Þetta segir í tilkynningu um kaupin frá Arctic Adventures. Ekkert kemur fram um kaupverð. Þar segir að fyrirtækið sé eitt rótgrónasta og öflugasta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Það bjóði upp á fjölbreyttar afþreyingarferðir um land allt þar sem lögð er áherslu á gæði og öryggi. Stefna Arctic Adventures sé að bjóða upp á sjálfbæra og vistvæna ferðaþjónustu í sátt við nærsamfélagið. Meðal þeirra ferðamannastaða sem félagið komi að rekstri á megi nefna Raufarhólshelli og Ísgöngin Into the Glacier í Langjökli. „Kerið er með merkilegustu náttúruperlum landsins. Við teljum að góðir möguleikar séu til staðar til frekari uppbyggingar við svæðið og jafnframt áframhaldandi náttúruverndar. Kerið er í alfaraleið og aðgengilegt til lengri eða skemmri skoðunarferða. Við fögnum því að hafa náð samningum um þessi kaup og hyggjumst vanda þar til uppbyggingar. Arctic Adventures á allt undir þegar kemur að náttúruvernd og því skiptir góð umgengni um náttúruna okkur gríðarlega miklu máli,“ er haft eftir Ásgeiri Baldurs, forstjóra Arctic Adventures. Áttu Kerið í 23 ár Í tilkynningu er haft eftir Óskari Magnússyni, stjórnarformanni Kerfélagsins, að allt hafi sinn tíma. Félagið hafi átt kerið 23 ár ljóst væri að komið væri að næsta kafla uppbyggingar á svæðinu. „Við töldum það heppilegan tíma til að láta staðar numið svo nýir eigendur geti byggt upp til frambúðar eftir sínum hugmyndum. Arctic Adventures er traust og burðugt félag sem mun án efa standa myndarlega að framhaldinu við Kerið. Við fjórmenningarnir höfum á þessum tímamótum ákveðið að stofna sérstakan sjóð sem styrkja mun sjálfbæra náttúruvernd í þeim anda sem reynst hefur farsæl við uppbyggingu Kersins. Við erum búin að eiga einstakt samstarf við bændurna á Miðengi í Grímsnesi og aðra nágranna okkar á svæðinu. Það er eindregin skoðun okkar og reynsla, að starfsemi af þessu tagi sé best fyrir komið með öflugri þátttöku heimamanna eins og við höfum borið gæfu til að njóta.“
Grímsnes- og Grafningshreppur Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Eigendur Kersins hagnast um nærri 60 milljónir Hagnaður Kerfélagsins, eiganda Kersins í Grímsnesi, var ríflega 58 milljónir króna í fyrra og næstum tvöfaldaðist frá árinu 2016 þegar hann var 30 milljónir. 4. apríl 2018 06:00 Tryggja beri öryggi við Kerið "Sveitarstjórn lýsir yfir miklum áhyggjum vegna umferðaröryggismála við Kerið þar sem umferð hefur aukist verulega,“ segir í bókun sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps. 9. mars 2018 07:00 Rukkuðu 70 milljónir í Kerið Kerfélagið hagnaðist um 30 milljónir króna í fyrra á því að rukka aðgangseyri í Grímsnesi. Um 150 þúsund ferðamenn heimsóttu Kerið og aðrir landeigendur eru byrjaðir eða í startholunum með að hefja gjaldtöku. 8. júní 2017 07:00 Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Eigendur Kersins hagnast um nærri 60 milljónir Hagnaður Kerfélagsins, eiganda Kersins í Grímsnesi, var ríflega 58 milljónir króna í fyrra og næstum tvöfaldaðist frá árinu 2016 þegar hann var 30 milljónir. 4. apríl 2018 06:00
Tryggja beri öryggi við Kerið "Sveitarstjórn lýsir yfir miklum áhyggjum vegna umferðaröryggismála við Kerið þar sem umferð hefur aukist verulega,“ segir í bókun sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps. 9. mars 2018 07:00
Rukkuðu 70 milljónir í Kerið Kerfélagið hagnaðist um 30 milljónir króna í fyrra á því að rukka aðgangseyri í Grímsnesi. Um 150 þúsund ferðamenn heimsóttu Kerið og aðrir landeigendur eru byrjaðir eða í startholunum með að hefja gjaldtöku. 8. júní 2017 07:00