Magnaður Elvar í sigri PAOK í Meistaradeildinni Smári Jökull Jónsson skrifar 18. október 2023 17:55 Elvar í leik með PAOK. Heimasíða PAOK Elvar Friðriksson og félagar hans í gríska liðinu PAOK mættu Galatasaray frá Tyrklandi í Meistaradeildinni í dag. Elvar var frábær í dag og náði þrefaldri tvennu í leiknum.
Elvar gekk til liðs við PAOK í sumar en leikur liðanna er hluti af Meistaradeild FIBA. Um var að ræða fyrsta leik liðanna í keppninni en leikið var á heimavelli Galatasaray í Islanbul. Elvar og félagar hans voru sterkara liðið frá upphafi í leiknum. Þeir leiddu 30-19 eftir fyrsta leikhlutann og í hálfleik munaði tíu stigum eftir að heimamenn í Galatasaray höfðu mest náð að minnka muninn í tvö stig. Staðan í hálfleik 52-42. Gestirnir héldu frumkvæðinu og munurinn var yfir tíu stigunum áður en fjórði leikhlutinn hófst. Elvar var að spila frábærlega fyrir lið PAOK og fór fyrir sínu liði. Heimamenn í Galatasaray voru að spila frekar illa og náði gríska liðið meðal annars nítján stiga forskoti í lokafjórðunginum. PAOK vann að lokum 88-77 sigur í þessum fyrsta leik liðsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Eins og áður segir var Elvar að spila afar vel fyrir PAOK. Lýsandi leiksins fór fögrum orðum um Njarðvíkinginn og sagði að hann gæti reynst kaup tímabilsins. Elvar gerði sér lítið fyrir og endaði leikinn með þrefaldri tvennu. Hann skoraði 19 stig, tók 11 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Alvöru byrjun í Meistaradeildinni hjá Elvari.
Körfubolti Mest lesið Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Fótbolti Glasner: Myndi ekki skipta á skildinum fyrir sæti í Evrópukeppni félagsliða Fótbolti Uppgjör: Valur - Breiðablik 2-1 | Dramatískt sigurmark Vals í uppbótartíma Íslenski boltinn Slot: Sá sem truflaði hafði örugglega ekkert illt í hyggju Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Íslenski boltinn „Rýr stigasöfnun í deildinni vissulega áhyggjuefni“ Fótbolti Barcelona rúllaði yfir Como Fótbolti Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Körfubolti „Brugðumst vel við þeim aðstæðum sem leikurinn henti í okkur“ Fótbolti Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enski boltinn Fleiri fréttir Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan sigraði Víking í viðburðarríkum leik Íslenski boltinn