Valur og Keflavík komu til baka Dagur Lárusson skrifar 24. október 2023 21:37 Úr leik hjá Val. Vísir/Bára Dröfn Valur og Keflavík komu bæði til baka og unnu sína leiki eftir að hafa verið undir í hálfleik í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld.
Í Keflavík tók heimaliðið á móti Snæfelli sem hafði ekki unnið leik í deildinni þar til í kvöld. Það voru gestirnir í Snæfelli sem voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en staðan eftir fyrsta leikhluta var 16-20. Forystan jókst í öðrum leikhluta og var staðan orðin 35-41 í hálfleik. Í þriðja leikhluta tók Keflavík við sér og skoraði 20 stig en Snæfell aðeins 12 og því forystan komin til Keflavíkur og nánast það sama gerðist í fjórða leikhlutanum nema þá setti Keflavík niður 21 stig í stað 20. Lokatölur í Keflavík 76-65 og Snæfell því enn án sigurs. Elisa Pinzan var stigahæst hjá Keflavík með tólf stig en stigahæst hjá Snæfelli var Eva Rupnik með 17. Haukar töpuðu á heimavelli gegn Grindavík þrátt fyrir frábæran leik hjá Keira Robinson sem setti 33 stig í leiknum. Lokatölur á Ásvöllum 69-80. Eve Braslis fór mikinn í liði Grindavíkur en hún setti 21 stig, tók níu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Fjölnir fór í heimsókn til Vals og var lengi vel með forystuna en staðan eftir fyrsta leikhluta var 14-21 og í hálfleik var hún 34-41 og enn og aftur var það Raquel Laneiro sem fór fyrir liði Fjölnis. Valsliðið kom þó til baka í seinni hálfleiknum og náði smátt og smátt að minnka forystu gestanna og að lokum var það Valur sem nældi í stigin tvö. Raquel Laneiro var stigahæst í liði Fjölnis með 23 stig en stigahæst hjá Val og í öllum leiknum var Karina Konstantinova. Lokatölur 73-69. Öll úrslit kvöldsins: Keflavík 76 - 65 Snæfell Valur 73 - 68 Fjölnir Haukar 71 - 84 Grindavík Breiðablik 71 - 92 Þór A
Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Körfubolti „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport Fleiri fréttir Tryggvi var framlagshæstur þegar sigurgangan hélt áfram Martin missir af landsleikjunum Elvar var stiga- og stoðsendingahæstur í sigri Jakob: Geggjað að fá þennan stuðning frá okkar fólki Stjörnumenn svekktir eftir leik: „Enginn í okkar liði átti A-klassa frammistöðu“ „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Leik lokið: Keflavík - Grindavík 92-83 | Keflavík bikarmeistari eftir sigur á Grindavík KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum „Við erum ekkert að einbeita okkur að því og ætlum bara að taka leikinn“ Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins Sjá meira