Óumflýjanleg hækkun húsnæðisverðs fari eftir útfærslum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 23. janúar 2024 20:00 Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála-ogefnahagsráðherra og Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Vísir/ívar Viðbúið er að húsnæðisverð hækki þegar Grindvíkingar koma inn á fasteignamarkaðinn að sögn fjármálaráðherra. Hagfræðideild Landsbankans segir áhrif á þenslu og verðbólgu meðal annars fara eftir því hvort gripið verði til skuldsetningar eða skattheimtu.
Ríkisstjórnin kynnti í gær aðgerðir sem eiga að gera Grindvíkingum kleift að koma sér upp öruggu heimili annars staðar en í bænum. Tvö frumvörp eru nú í vinnslu í fjármála-og efnahagsráðuneytinu vegna málsins. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála-og efnahagsráðherra segir undirbúning aðgerða í gangi. „Við erum þegar komin af stað með það hvernig við myndum fjármagna þetta. Ríkissjóður er auðvitað í þeirri stöðu sem hann er þannig að það þarf að sýna ábyrgð. Við vitum líka að þessi staða að eitt prósent af íbúðamarkaði komi inn á fasteignamarkaðinn mun hafa áhrif á húsnæðisverð þannig að það mun eitthvað hækka,“ segir Þórdís. Fram kom í gær að án mótvægisaðgerða muni fasteignaverð hækka um þrjú prósent. „Það skiptir gríðalegu máli að við takmörkum áhrif þessar aðgerða á ríkisfjármálin, peningastefnu og þetta setur strik í yfirlýst markmið um að ná tökum á verðbólgunn,“ segir Þórdís. Skortur og þensla fyrir Við þetta bætist að síðustu misseri hefur verið varað við að ekki sé verið að byggja nóg. Þá hefur nýjum auglýstum íbúðum fækkað samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hagfræðideild Landsbankans segir ljóst að verðhækkanir á húsnæðismarkaði séu framundan. Hildur Margrét Jóhannsdóttir er hagfræðingur þar. „Á húsnæðismarkaði er mjög líklegt að húsnæðisverð hækki meira en ella vegna þess að nú er bara meiri þörf og eftirspurn eftir íbúðum en áður vegna stöðunnar,“ segir Hildur. Ljóst sé að aðgerðir ríkistjórnarinnar fyrir Grindvíkinga muni hafa áhrif á allt efnahagslífið en hversu mikil fari eftir því hvaða fjármögnunarleiðir verði fyrir valinu. „Ef ríkissjóður tekur lán fyrir aðgerðarpakka Grindvíkinga þá er hætta á að útgjöldin auki þenslu í hagkerfinu og kyndi undir verðbólgu. Hin leiðin er að fjármagna leiðina með aukinni skattheimtu eða draga úr útgjöldum annars staðar,“ segir hún. Viðskiptabankarnir ræða við stjórnvöld Meðal margra úrlausnarmála í Grindavík eru fasteignalán íbúa. Þá hver eigi að taka á sig skuldbindingar vegna þeirra nú þegar Grindvíkingar geta ekki til lengri eða skemmri tíma búið í bænum. Viðskiptabankarnir þrír Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn tilkynntu í nóvember að þeir myndu fella niður vexti og verðbætur af íbúðalánum Grindvíkinga í þrjá mánuði ásamt því að frysta afborganir húsnæðislána. Bankarnir tilkynntu svo í síðustu viku að úrræðið yrði framlengt um þrjá mánuði þannig að alls hafa bankarnir tilkynnt um niðurfellingu vaxta og verðbóta íbúðalána Grindvíkinga í sex mánuði til viðbótar við greiðslufresti af lánum. Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja segir að nú séu viðskiptabankarnir að ræða við stjórnvöld um framtíðarlausn vegna fasteignalánanna. „Hið minnsta eru þeir allir í samtali við ráðuneytið þannig að ég reikna með að stjórnvöld komi fram með einn pakka burtséð hjá hvaða banka aðilar eru með fasteignalán sín,“ segir Heiðrún.
Grindavík Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Eldgos og jarðhræringar Húsnæðismál Fasteignamarkaður Rekstur hins opinbera Fjármálafyrirtæki Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira