Kveðja Gylfa Þór sem er á leið í Val Aron Guðmundsson skrifar 14. mars 2024 08:39 Gylfi Þór Sigurðsson sneri aftur í boltann á síðasta ári. Nú virðist hann á heimleið í Bestu deildina Vísir/Vilhelm Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby hefur gefið frá sér tilkynningu þar sem að greint er frá því að Gylfi Þór Sigurðsson muni ekki snúa aftur til félagsins er hann hefur jafnað sig á meiðslum. Gylfi Þór er við það að skrifa undir samning við Bestu deildar lið Vals.
Gylfi Þór hefur verið við æfingar með Val á Spáni, eftir að hafa sinnt þar sjálfur endurhæfingu sinni eftir meiðsli. Hann fékk samningi sínum við danska félagið Lyngby rift í janúar, til að sinna endurhæfingunni án þess að þiggja laun, en samningurinn átti að gilda fram á sumar. Andreas Byder, yfirmaður knattspyrnumála hjá Lyngby sagði eftir þau tíðindi að félagið og Gylfi Þór hefðu gert með sér heiðursmannasamkomulag þess efnis að hann myndi snúa aftur til Lyngby þegar að hann væri búinn að ná sér af meiðslunum. Nú er þó ljóst að Gylfi Þór mun ekki snúa aftur til liðsins. Hann hefur átt í viðræðum við Bestu deildar lið Vals sem hafa gengið mjög vel. Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, fullyrti hins vegar við Vísi í gær að viðræðum sé ekki lokið og að Gylfi hafi enn ekki skrifað undir samning við Hlíðarendafélagið. Það ku þó aðeins vera tímaspursmál hvenær það gerist. Í tilkynningu Lyngby frá því í morgun, um endanlegt brotthvarf Gylfa Þórs frá félaginu er eftirfarandi haft eftir Gylfa: „Ég kann virkilega vel að meta það tækifæri sem Lyngby gaf mér til þess að snúa aftur í fótboltann. Ég mun verða þeim ævinlega þakklátur fyrir það. Það skiptir mig miklu máli og ég mun aldrei gleyma móttökunum sem ég fékk frá stuðningsmönnum félagsins á fyrsta heimaleiknum. Ég óska félaginu alls hins besta í framhaldinu.“
Valur Danski boltinn Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Fótbolti Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fótbolti Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Fótbolti Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Fótbolti Fleiri fréttir Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Sjá meira