Eydís og Þorvaldur til Genís Atli Ísleifsson skrifar 21. mars 2024 12:11 Eydís Einarsdóttir og Þorvaldur Ingvarsson. Aðsend Eydís Einarsdóttir og Þorvaldur Ingvarsson hafa verið ráðin til starfa hjá líftæknifyrirtækinu Genís á Siglufirði.
Í tilkynningu segir að Eydís hafi verið ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra gæða- og tæknimála og þá mun Þorvaldur veita félaginu ráðgjöf á sviði beinígræðslu og lækningatækja. „Eydís hefur undanfarin sjö ár starfað hjá Alvotech, nú síðast sem yfirmaður og sérfræðingur á sviði gæðamála, og þar áður m.a. hjá spænska lyfjafyrirtækinu PharmaMar í Madrid og hjá ArcticMass á Íslandi. Eydís er með Ph.D. og M.Sc. í lyfjavísindum frá Háskóla Íslands og hefur víðtæka reynslu af lyfjaþróun og gæðamálum. Hún hefur þegar tekið til starfa. Þá hefur Þorvaldur Ingvarsson einnig gengið til liðs við Genís hf. og mun veita félaginu ráðgjöf á sviði beinígræðslu og lækningatækja. Þorvaldur útskrifaðist úr læknadeild Háskóla Íslands árið 1987 og hlaut doktorsgráðu í bæklunarskurðlækningum frá Háskólanum í Lundi árið 2000. Hann starfar sem bæklunarlæknir í Orkuhúsinu, sem og við Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þorvaldur situr í stjórn Medor, í háskólaráði Háskóla Íslands og er prófessor við Heilbrigðisvísindastofnun HA. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarsviðs Össurar hf., þar sem hann leiddi þróun og nýsköpun á lækningatækjum, og var dósent við læknadeild Háskóla Íslands. Hann hefur einnig verið forstjóri og lækningaforstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Þorvaldur hefur víðtæka reynslu af störfum innan heilbrigðisgeirans sem stjórnandi, læknir og ráðgjafi“ segir í tilkynningunni. Íslenska líftæknifyrirtækið Genís hf. hefur um tveggja áratuga skeið unnið að rannsóknum og þróun á lífvirkum kítínfásykrum til notkunar í fæðubótarefnum, lyfjum og við beinígræðslu. Fyrirtækið var stofnað árið 2005 og eru höfuðstöðvar og framleiðsla þess á Siglufirði.
Vistaskipti Líftækni Fjallabyggð Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira