„Ekki allt satt og rétt í þessari yfirlýsingu“ Smári Jökull Jónsson skrifar 6. apríl 2024 14:20 Snorri Arnaldsson er mótastjóri KKÍ. Heimasíða KKÍ Mótastjóri KKÍ segir ekki allt satt og rétt sem fram hafi komið í yfirlýsingu Grindavíkur vegna Íslandsmóts 11 ára drengja um helgina. Hann segir ljótt að gera hlutina eins og Grindvíkingar hafi gert.
Orð mótastjóra KKÍ snúa að yfirlýsingu sem Grindavík gaf frá sér í kjölfar atburðarásar í sambandi við keppni Minnibolta 11 ára og yngri á Ísafirði um helgina. Þar spila drengir á móti sem er hluti af Íslandsmóti aldursflokksins. Í yfirlýsingu Grindvíkinga kom fram að vegna slæmrar veðurspár hafi KKÍ ákveðið að stytta mótið en að styttingin hafi aðeins átt við lið í neðra getustigi. Þessu mótmæltu Grindvíkingar og gagnrýndu þar að auki viðbrögð KKÍ við fyrirspurnum liðsins og segir að ábendingum hafi verið svarað með óviðeigandi hætti. Snorri Arnaldsson er mótastjóri KKÍ. Hann segir að KKÍ hafi ekki fengið yfirlýsingu Grindvíkinga senda heldur hafi hún aðeins birst á samfélagsmiðlum. „Það er ekkert allt satt og rétt í þessari yfirlýsingu og það verður farið yfir það eftir helgi. Þau sendu yfirlýsinguna ekki á okkur heldur birtist hún bara á samfélagsmiðlum,“ sagði Snorri í samtali við Íþróttadeild Vísis og bætti við að frekari viðbrögð vegna málsins kæmu frá KKÍ eftir helgi og myndi framkvæmdastjóri sjá um málið. Mótið á Ísafirði fór fram um helgina þrátt fyrir að fleiri félög en Grindavík hafi hætt við þátttöku vegna breytinganna sem gerðar voru á leikjafyrirkomulaginu. Snorri sagði að þau lið sem hafi mætt hafi spilað. Í yfirlýsingu Grindvíkinga kom jafnframt fram að félagið hafi fengið upplýsingar um frekari breytingar á leikjafyrirkomulaginu síðar en önnur lið. Ef liðið hefði fengið þær upplýsingar í tíma hefði félagið haldið til Ísafjarðar. „Það er rangt. Önnur félög spurðu spurninga og fengu svör við þeim. Það er auðvelt að henda fram einhverjum samsæriskenningum en þetta var bara engan vegin þannig. Það er ljótt að gera þetta eins og Grindavík gerði svo ég segi það nú bara.“
Körfubolti Mest lesið Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Fótbolti Keflavík sækir liðsstyrk Körfubolti Styðja þétt við bak Gakpo eftir áfallið mikla Fótbolti Stórsigur Aftureldingar og hrun Ægis Fótbolti Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Fótbolti Fá góðar móttökur í Dallas Sport Hermann látinn taka pokann sinn Fótbolti Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Enski boltinn Húðskammaður af forseta landsins og „blurraður“ í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Sjá meira