Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Smári Jökull Jónsson skrifar 3. maí 2024 18:47 Viggó Kristjánsson var markahæsti maður vallarins í dag. Getty/Jan Woitas Viggó Kristjánsson var markahæsti maður vallarins þegar Íslendingaliðið Leipzig vann sigur á Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.
Lið Leipzig hefur gert fína hluti á tímabilinu undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar. Rúnar tók við liðinu á miðju tímabili í fyrra þegar liðið var í fallbaráttu. Hann bjargaði liðinu þá frá falli og á þessu tímabili hefur liðið verið í efri hluta þýsku deildarinnar. Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson, sonur Rúnars þjálfara, voru báðir í leikmannahópi Leipzig í dag þegar liðið var í heimsókn hjá Göppingen. Viggó fór algjörlega á kostum í leiknum og lauk leik markahæstur allra á vellinum. Hann skoraði tíu mörk úr þrettán skotum í 30-27 sigri Leipzig. Leipzig virtist ætla að valta yfir heimamenn í Göppingen og leiddu 18-10 í hálfleik. Í síðari hálfleik tóku heimamenn hins vegar við sér. Þeim tókst að jafna metin í 27-27 en Leipzig skoraði þrjú síðustu mörkin og Viggó það síðasta með skoti í tómt markið. Leipzig er nú í 8. sæti þýsku deildarinnar með 29 stig en liðið er fimm stigum á eftir Hannover-Burgdorf sem er í sætinu fyrir ofan. Andri Már Rúnarsson skoraði tvö mörk fyrir Leipzig í dag.
Þýski handboltinn Mest lesið Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield Enski boltinn Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Íslenski boltinn „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Fótbolti Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Verður markamet efstu deildar karla bætt? Sport Tíu af bestu kylfingum landsins lögðu Minningarsjóð Bryndísar Klöru lið Golf „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Fleiri fréttir Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Sjá meira