Helena fær sæti í Heiðurshöll TCU skólans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2024 13:30 Helena Sverrisdóttir á ferðinni í leik með Texas Christian University skólanum sem jafnan gengur undir nafninu TCU. Mynd/TCU Íslenska körfuboltakonan Helena Sverrisdóttir verður tekin inn í Heiðurshöll Texas Christian University í haust en skólinn tilkynnti þetta á heimasíðu sinni.
Nýjustu meðlimir Heiðurshallarinnar verða heiðraðir með viðhöfn á fótboltaleik TCU skólans 4. október næstkomandi og vonandi fær Helena að vera viðstödd. Helena átti fjögur frábær ár með körfuboltaliði skólans frá 2007 til 2011. Hún kom þangað sem tvöfaldur Íslandsmeistari með Haukum og fór síðan í atvinnumennsku í Evrópu eftir að hún útskrifaðist úr skólanum. Helena var valin nýliði ársins Mountain West deildinni á fyrsta tímabilinu 2007-08 og var síðan valin besti leikmaður deildarinnar tímabilið 2009-10. Engin leikmaður TCU hefur verið valin oftar leikmaður vikunnar í Mountain West deildinni en þann heiður fékk Helena níu sinnum á ferli sínum með skólanum. Helena er líka eini leikmaðurinn í sögu skólans með að lágmarki 1700 stig, 800 fráköst og 500 stoðsendingar á ferlinum sínum. Helena gaf 546 stoðsendingar í búningi TCU sem er það mesta í sögu skólans. Hún er einnig fjórða stigahæst (1764) og í fimmta sæti í stolnum boltum (227) í sögu skólans. Helena er fimmta körfuboltakonan í sögunni sem er tekin inn í heiðurshöll Texas Christian University en þangað kemst besta íþróttafólk skólans úr öllum íþróttunum sem þar eru stundaðar.
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Enski boltinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rodman í heiðurshöll WWE Friðrik Leó áfram en Birgir Leifur úr leik í Marsfárinu „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Ármann fékk skell í kveðjugjöf Tryggvi fagnaði eftir trylli í Pýreneafjöllum Hamar/Þór - Keflavík 88-85 | Keflavík fékk Hamarshögg í Þorlákshöfn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 115-104 | Álftanes á leið í sumarfrí Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Tilþrifin: Pungur og plakat Lungað féll saman hjá NBA-stjörnu Varði skot mótherja með skónum sínum „Skutum í hringinn en ekki í körfuna“ Höttur endurheimti sætið í Bónus-deildinni Uppgjör: Stjarnan - ÍA 113-102 | Meistararnir mörðu Skagamenn LeBron James jafnaði leikjamet Robert Parish í NBA Fresta leik á Króknum vegna veðurs Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Uppgjörið:Keflavík - Valur 85-88| Valur tryggði heimaleikjaréttinn í fyrstu umferð „Búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir“ Uppgjör: Þór Þ.-Njarðvík 109 - 72: Þórsarar lifa í voninni eftir öflugan sigur Uppgjör: Ármann-Grindavík 103-87 | Rúlluðu upp deildarmeisturunum „Algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna“ Friðrik Leó og félagar fóru auðveldlega yfir fyrstu hindrunina Uppgjörið: ÍR - KR 102-99 | Hetjuleg endurkoma ÍR-inga Sundskýlurnar slógu hitt liðið út af laginu og Almar komst áfram Náðu loksins saman um að bjarga WNBA eftir hundrað klukkutíma viðræður Tryggvi og félagar í undanúrslit FIBA Europe-bikarsins Fékk bara að byrja einu sinni en var samt valin best Dani: Við erum að taka næstu skref Sjá meira