Þau sem hunsa helförina Birgir Rúnar Davíðsson skrifar 7. júní 2024 18:30 „Gjörðir fólks í dag sýna okkur hvað sama fólk hefði gert á meðan á helförinni stóð.“ Þessi orð tók ég með mér frá fundi dr. Mads Gilbert í Hofi á Akureyri, en Mads er margverðlaunaður norskur læknir sem hefur lengi stutt Palestínumenn í baráttunni gegn þungvopnuðu hersetuliði Ísraels. Ísrael hefur lagt undir sig stöðugt meira af landi palestínsku þjóðarinnar, á ólöglegan hátt, síðustu 75 árin. Fjölmiðlum hættir til þess að kalla þetta átök tveggja aðila, annars vegar Ísraels og hins vegar Hamas, eins og eitthvað sé óljóst um atburði og ástæður þeirrar stöðu sem nú er uppi. Raunin er sú að Ísrael rekur harða nýlendustefnu gagnvart Palestínu og þurrkar miskunnarlaust út allt sem sem minnir á tilvist palestínsku þjóðarinnar. Ísrael hefur hunsað alþjóðareglur áratugum saman og hertekið landsvæði á ólöglegan hátt, flutt þangað landnema og gert landið að sínu. Þetta er kolólögleg nýlendustefna. Áhrifaríkt er að sjá myndrænt hvernig land palestínsku þjóðarinnar hefur minnkað frá því Ísraelsríki var stofnað og þegar yfirvöld Ísraels sýna kort af svæðinu er ekkert þar að sjá sem heitir Palestína, aðeins Ísrael. Látið er eins og Palestína sé ekki til og það er einmitt stefna og markmið ísraelskra yfirvalda. Hvaða þjóð myndi ekki berjast gegn þessu? Samkvæmt alþjóðalögum er fólki einmitt heimilt að berjast gegn ólöglegri hersetu, jafnvel með vopnum. Að sjálfsögðu á baráttan að snúast gegn hermönnum en ekki almennum borgurum, en þegar fréttamiðlar tala stöðugt um gísla í haldi Hamas gleymist að nefna 9000 palestínska fanga sem dúsa við ömurlegar aðstæður og án nokkurrar ákæru í búrum Ísraelsmanna. Hver er í raun munurinn á gísl og fanga sem aldrei er ákærður fyrir nokkurn glæp? Þegar talað er um hræðileg morð Hamas-liða þann 7. október 2023 gleymist oft að benda á þá tölfræðilegu staðreynd að fyrir hvern einasta fallinn Ísraela hefur ísraelski herinn myrt hundruð Palestínubúa í ólöglegri hersetu sinni. Almenningur á Vesturlöndum virðist blessunarlega vera farinn að snúast gegn Ísrael í þessu máli og myndir birtast frá fjölmennum kröfugöngum og mótmælum þar sem fána Palestínu er flaggað. Ráðamenn hér á landi hafa hingað til hunsað það sem æ fleiri kalla þjóðarmorð, hafa ekki viljað styggja stórveldið í vestri, og einn allra æðsti ráðamaðurinn virðist vera óupplýstur, heilaþveginn eða algjörlega laus við alla mannúð og hluttekningu. Sem er einmitt eitt af því sem skilgreinir siðblindu. Hann talar nefnilega alltaf eins og það sé Hamas sem valdi hörmungunum, talar eins og allt stafi af því sem gerðist þann 7. október 2023, eins og sá dagur hafi verið upphafið, talar eins og máttlítil tilraun með gagnslitlum skeytum gegn ólöglegu hersetuliði réttlæti það að flóttamenn í tjaldbúðum séu brenndir lifandi. Réttur palestínsku þjóðarinnar til að berjast gegn ólöglegri hersetu Ísraels er nákvæmlega sá sami og réttur Úkraínu til að berjast og endurheimta landsvæði sem Rússar hafa lagt undir sig í ólöglegu árásarstríði Pútíns. Vesturlönd dæla vopnum til Úkraínumanna og styðja þá með ráðum og dáð, en líta svo í hina áttina þegar palestínska þjóðin er barin, limlest, skotin og brennd. Það er erfitt að finna aðrar ástæður fyrir þessum ólíku viðbrögðum en dökkan húðlit og framandi trúarbrögð. Á meðan íslenskir ráðamenn líta í hina áttina og þora hvorki að gera neitt né segja, hækkar sú krafa almennings um að við sýnum fordæmi með því að stíga fast til jarðar og lýsa því yfir að þessi grimmd Ísraels gangi ekki lengur. Við erum lítil þjóð en við getum haft áhrif. Við getum sýnt fordæmi, verið hvati fyrir stærri þjóðir til að stíga fram. Við getum sett viðskiptaþvinganir á Ísrael. Við getum slitið stjórnmálasambandi við Ísrael. Við getum sýnt heiminum að við tökum því ekki þegjandi að heimili milljóna séu lögð í rúst, moskur og kirkjur eyðilagðar, skólar sprengdir, sjúkrahúsum gjöreytt og neyðaraðstoð hindruð svo að hungurdauði vofir hundruðum þúsunda. Eitt það skrýtnasta við helförina var það hve margir voru sannfærðir um að þörf væri á henni, að hún væri réttlætanleg og nauðsynleg. Fólk leit undan og gerði ekkert. Núna eru ráðamenn í sömu sporum og gera ekkert þegar viðurstyggilegt þjóðarmorð stendur yfir. Sagan mun dæma þá harðlega sem hafa tækifæri til að hafa áhrif en líta undan og afsaka sig með því að við séum nú ekki vön að gera hitt eða þetta. Allir geta gert eitthvað. Það má sniðganga ísraelskar vörur, þrýsta á fyrirtæki að nota ekki Rapyd fyrir greiðsluhirðingu, flagga palestínska fánanum, ganga í Félagið Ísland-Palestínu, mæta á mótmælasamkomur, fylgja fólki eins og dr. Mads Gilbert og miðlum eins og AJ+ á samfélagsmiðlum og deila efni til sem flestra. Það má skrifa tölvupóst til sveitastjórnarmanna, þingmanna og ráðherra, fara fram á að stuðningur við Palestínu verði sýndur á alla mögulega vegu. Allt eru þetta lítil atriði en dropinn holar steininn og samstaða almennings getur haft mikil áhrif. Framar öðrum eru það ráðamenn þjóðarinnar sem eru að missa af tækifærinu til að gera það rétta. Það eru þeir sem verða dæmdir harðlega með öðrum ráðamönnum sem gátu sýnt mannúð á tímum þjóðarmorðs en litu frekar undan og hunsuðu það helvíti sem palestínska þjóðin er föst í. Skilaboðin til yfirvalda eru einföld: Viðskiptaþvinganir strax og slítið stjórnmálasambandi við Ísrael. Höfundur er manneskja með samúð og réttlætiskennd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
„
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun