Vanhæfur þegar hann dæmdi mann til að greiða 142 milljónir Árni Sæberg skrifar 8. júní 2024 21:51 Ingi Tryggvason er dómari við Héraðsdóm Reykjaness. VÍSIR/TRYGGVI PÁLL Héraðsdómarinn Ingi Tryggvason var vanhæfur þegar hann dæmdi mann til fimmtán mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 142,5 milljóna króna sektar vegna brota á skattalögum. Hann olli eigin vanhæfi með því að tjá sig óvarlega um sakarefnið undir rekstri málsins. Þetta var niðurstaða Landsréttar, sem ómerkti dóms Héraðsdóms Reykjaness og vísaði honum heim í hérað til úrlausnar á ný í gær. Maðurinn, sem er ekki nafngreindur í dómi Landsréttar, var árið 2022 dæmdur til fimmtán mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 142,5 milljóna króna sektar fyrir að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2016 til 2018 með því að hafa látið undir höfuð leggjast að telja fram skattskyldar tekjur frá einkahlutafélagi upp á 162 milljónir króna og þannig komið sér hjá að greiða tekjuskatt og útsvar að fjárhæð 71 milljón króna. Hann áfrýjaði þeim dómi Landsréttar og krafðist þess að hann yrði ómerktur vegna vanhæfis dómarans. Hafi tekið afstöðu of snemma Í dómi Landsréttar segir að ómerkingarkröfu sína hafi maðurinn byggt á því að héraðsdómari hafi tjáð sig með þeim hætti undir rekstri málsins, áður en hann hlýddi á vitni í málinu og áður en málflutningur fór fram, að hann teljist vanhæfur til að kveða upp dóm í því samkvæmt lögum um meðferð sakamála og því bæri að ómerkja hinn áfrýjaða dóm. Í greinargerð mannsins var vitnað í fern orðaskipti milli Inga og mannsins, sem eru meðal annars eftirfarandi: „Ef að þú eins og ég segi það er talið að þú hafir þú fékkst þessa peninga og þessir menn þurfa sjálfir að gera grein fyrir þeim. Ef þú færð pening inn á þinn bankareikning ef það er talið að þeim sé ráðstafað með einhverjum óeðlilegum hætti sem var nú greinilega í þessu tilfelli, það er náttúrulega ekki eðlilegt að einstaklingur fái 320 milljónir inná reikninginn sinn sem hann á ekki sko þannig að ef að menn taka þessaáhættu að þá taka þeir líka áhættu á því að útskýra það ef að þetta er farið sætir skoðun.“ „Ja ég verð nú bara að segja þó það kannski komi ekki mér finnst það mér finnst það frekarósennilegt ef menn taka út tugi eða hundruðir milljóna í peningum að þeir leggjaþá aftur inn í banka og fari með þá þaðan. Það finnst mér, mér finnst frekar ósennilegt en það getur vel verið að menn geri þetta.“ Af þessum ummælum mætti ráða að dómarinn hafi verið búinn að taka afstöðu til sakarefnis áður en málið var tekið til dóms. Af hálfu ákæruvaldsins hafi ómerkingarkröfunni mótmælt og bent á að með framangreindum ummælum héraðsdómarans hafi hann verið að leiðbeina ákærða og ganga úr skugga um að hann skildi og væri ljós sú staða, sem hefði verið uppi gagnvart ákærða þegar búið var að flytja fjármuni félagsins af reikningi þess yfir á eigin bankareikning ákærða, og sem ákæruvaldið reisti málatilbúnað sinn á. Sakborningur verði að geta treyst dómaranum Í niðurstöðukafla Landsréttar segir að þegar lagt er mat á hæfi dómara til að fara með mál verði að gæta að því að tilgangur hæfisreglna í réttarfarslögum er ekki einungis að tryggja að dómari sitji ekki í máli nema hann sé óhlutdrægur gagnvart bæði aðilum máls og efni þess, heldur einnig að tryggja traust aðila jafnt sem almennings til dómstóla með því að koma í veg fyrir að dómari komi að úrlausn máls ef réttmæt tortryggni gæti risið um óhlutdrægni hans. Sé réttmætur vafi um óhlutdrægni dómara sé óhjákvæmilegt að hann víki sæti í máli Samkvæmt lögum um meðferð sakamála sé dómari vanhæfur til að fara með mál ef fyrir hendi eru atvik eða aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans með réttu í efa. Dómari ver'i jafnan að gæta að hæfi sínu þannig að efnisleg afstaða hans til þess ágreinings sem uppi er í málinu, komi ekki fram fyrr en í dómi. Ekki sáttur með spurningarnar Af upptökum úr dómsal sé ljóst að á stundum hafi maðurinn ekki verið alls kostar sáttur með þær spurningar sem Ingi beindi að honum. „Þótt það sé að sínu leyti skiljanlegt að héraðsdómari hafi, við þessar aðstæður, talið rétt að útskýra fyrir ákærða hverjar sönnunarkröfur væru gerðar í máli sem þessu, verður ekki framhjá því litið að í ummælum dómarans, sem gerð er grein fyrir hér að framan í efnisgrein 8 og féllu áður en teknar voru skýrslur af vitnum og munnlegur málflutningur fór fram, fólust öðrum þræði ályktanir hans um sönnunarstöðuna í máli ákærða,“ segir í dóminum. Því verði að fallast á það með manninum að ummæli dómarans hafi verið til þess fallin gefa honum tilefni til að draga óhlutdrægni dómarans í efa. Af þeim sökum væri óhjákvæmilegt að ómerkja hinn áfrýjaða dóm ásamt meðferð málsins í héraði frá upphafi aðalmeðferðar og vísa því til héraðsdóms til úrlausnar á ný Dómsmál Dómstólar Skattar og tollar Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent „Bara djók sem gekk of langt“ Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Innlent Fleiri fréttir Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Sjá meira
Ef að þú eins og ég segi það er talið að þú hafir þú fékkst þessa peninga og þessir menn þurfa sjálfir að gera grein fyrir þeim. Ef þú færð pening inn á þinn bankareikning ef það er talið að þeim sé ráðstafað með einhverjum óeðlilegum hætti sem var nú greinilega í þessu tilfelli, það er náttúrulega ekki eðlilegt að einstaklingur fái 320 milljónir inná reikninginn sinn sem hann á ekki sko þannig að ef að menn taka þessaáhættu að þá taka þeir líka áhættu á því að útskýra það ef að þetta er farið sætir skoðun.“ „Ja ég verð nú bara að segja þó það kannski komi ekki mér finnst það mér finnst það frekarósennilegt ef menn taka út tugi eða hundruðir milljóna í peningum að þeir leggjaþá aftur inn í banka og fari með þá þaðan. Það finnst mér, mér finnst frekar ósennilegt en það getur vel verið að menn geri þetta.“
Dómsmál Dómstólar Skattar og tollar Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent „Bara djók sem gekk of langt“ Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Innlent Fleiri fréttir Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Sjá meira