„Að skora í gegnum keðjunet er bara gæsahúðar móment“ X977 11. júní 2024 15:55 Sigurlið Streetball móts X977 síðasta sumars. Mótið fer fram á Klambratúni í Reykjavík næsta laugardag. Myndir/Anton Brink. Árlegt Streetball mót X977 verður haldið laugardaginn 15. júní á Klambratúni í Reykjavík, heimili götuboltans á Íslandi. Það er X977 og KKÍ sem halda mótið í samstarfi við Subway, Útilíf og Egils Orku og má búast við miklu fjöri og góðum tilþrifum enda stefnir í gott veður í höfuðborginni þennan daginn.
Sigurður Orri Kristjánsson (t.v.) og Tommi Steindórs sjá um skipulag Streetball móts X977. „Fyrsta Streetball mótið var haldið sumarið 2022 eftir að mótið hafði legið í dvala í rúmlega áratug,“ segir útvarpsmaðurinn Tommi Steindórs, annar umsjónarmanna mótsins. „Það er pláss fyrir 24 lið á mótinu og það hefur alltaf verið fullskipað. Stemmningin á Klambratúni er alltaf upp á 10!“ „Það kostar ekki krónu að taka þátt en það er til hellings að vinna,“ bætir Sigurður Orri Kristjánsson við, best þekktur sem Véfréttin og annar stjórnenda körfuboltaþáttarins Boltinn lýgur ekki ásamt Tomma Steindórs, en hann sér um skipulag mótsins með Tomma. „Það eru 70.000 kr. í beinhörðum peningum fyrir efsta sætið í mótinu og 2. sætið fær 30.000 kr. í sinn hlut. Styrktaraðilar gefa síðan þremur efstu liðunum þrjár veglegar gjafir.“ Spilað verður 3 á 3 en hvert lið má þó innihalda 4 leikmenn. Úrvalsdeildarleikmenn, leikmenn fyrstu deildar og þeir sem hafa spilað með erlendum háskólum eru ekki gjaldgengir í mótið, nema auðvitað í brekkuna. „Það komast aðeins 24 lið inn á mótið og því hvetjum við sem flesta til að skrá sig til leiksen skráningu lýkur á föstudaginn kl. 16.“ Þeir félagar segjast báðir elska götubolta. „Að skora í gegnum keðjunet er bara gæsahúðar móment í hvert einasta skipti. Keppnisandinn er mikill en kappið fær aldrei að bera fegurðina ofurliði. Það er mikið um stympingar en við dómarar pössum upp á að það verði aldrei slagsmál. Við viljum hvetja sem flesta til að mæta og horfa á því það er svo ótrúlega gaman að fylgjast með þessum leikjum.“ Streetball mót X977 byrjar kl. 11 á laugardaginn 15. júní.
X977 Körfubolti Mest lesið Lærimeistari Charlie Kirk og faðir klappstýru nútímans látinn Lífið Ein veirusýking sneri öllu lífinu á hvolf Lífið Krakkatía vikunnar: Mario, vöfflur og ólöghlýðinn kisi Lífið Landsliðsmaður í ADHD sem lifir á húmornum Lífið Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Lífið Fréttatía vikunnar: Vextir og verðlaun á verðlaun ofan Lífið Nicholas Brendon er látinn Lífið Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Lífið Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Lífið Fór lögblind í gegnum doktorsnám Lífið Fleiri fréttir Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira