Nú sannast hið fornkveðna: kvótakerfið hefur ekkert með fiskvernd að gera Kjartan Páll Sveinsson skrifar 22. júní 2024 15:01 Strandveiðifélag Íslands mótmælir harðlega áformum um kvótasetningu grásleppu. Tillögurnar eru hluti af aðför stjórnvalda að smábátaveiðum í hinum dreifðu byggðum og koma til með að hafa fyrirséðar afleiðingar fyrir smábátasjómenn um allt land. Að baki kvótasetningu á grásleppu liggja engin rök sem lúta að: fiskifræði, enda eru engar áreiðanlegar aðferðir til stofnstærðarmælinga til, en það er þó ekkert sem bendir til þess að grásleppa sé ofveidd eða í nokkurri hættu. Aukin heldur hefur Alþjóðahafrannsóknaráðið ekki viðkennt aðferðafræði Hafrannsóknarstofnunar við stofnmælingu grásleppu, enda ekki trúverðug aðferð að stofnmæla grásleppu með stórum togurum og botntrollum byggðafestu, enda hefur kvótasetning allra annarra tegunda leitt til linnulausrar blóðtöku úr brothættum byggðum fyrirsjáanleika í greininni, enda væri framseljanleiki kvótans óþarfur ef svo væri nýliðun, enda hefur kvótasetning eingöngu leitt til skerðingar á atvinnufrelsi. Yfirvofandi kvótasetning stjórnvalda síðustu ár hefur aftrað mönnum frá því að byrja á grásleppu vegna óvissunar sem stjórnvöld hafa skapað. Auk þess hafa aðilar með grásleppuleyfi og veiðireynslu haldið að sér höndum að selja báta og grásleppuleyfi, í von um að kvótasetning grásleppu færi þeim gríðarleg verðmæti til að selja eða leigja frá sér hagræðingu, enda mun hið boðaða 1,5% kvótaþak (sem kemur þó til með að hækka ört á skömmum tíma) ekki nægja kröfum SFS um samþjöppun Þessi þráhyggja einkavæðingarsinna um kvótasetningu grásleppu sýnir það og sannar sem allir vita: kvótakerfið hefur ekkert með verndun fiskistofna að gera. Markmiðið er að senda hrognkelsið sömu leið og alla aðra nytjastofna: í einkaeigu örfárra aðila. Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar og aðalsprautan í þessu sorgarferli, felur sig á bak við 1,5% kvótaþak sem sönnun þess að kvótinn muni ekki allur enda hjá stórútgerðinni. Það verður þó auðsótt mál, þegar grásleppan hefur verið geirnegld í kvóta, að hækka þakið. Við höfum áður séð þann trójuhest innan fiskveiðistjórnunarkerfis Íslendinga. Nú þegar liggja fyrir áform um lagasetningu um að hækka kvótaþakið úr 12% í 15% af heildarkvóta fiskveiðiflotans. Eftir situr að „hagræðing“ getur ekki talist til réttlætingar kvótasetningarinnar. Það er þó engin girðing fyrir aðila sem vilja fara í kringum kvótaþakið, að gera það með sama hætti og stórútgerðin, sem sagt að setja kvótann og bátana í nógu mörg félög og færa kvóta á milli innan fiskveiðiársins, sleppa þannig undan reglum um kvótaþakið. Það er því alveg ljóst að frumvarpið markar upphaf verksmiðjuveiða í grásleppu og „grásleppukarlinn“ heyrir nú sögunni til. Þegar menn fara hægt og bítandi að selja sig út vilja þeir væntanlega nota bátana sína í eitthvað annað og þá liggja strandveiðar beint við. Því má búast við töluverðri aukningu á sókn innan strandveiðikerfisins, sem nú þegar er löngu komið út að ystu þanmörkum. Fyrst skerða á atvinnufrelsi smábátasjómanna með þessum hætti verða stjórnvöld að grípa til mótvægisaðgerða og stækka strandveiðipottinn svo um munar. STÍ bíður spennt eftir tilkynningu þar að lútandi. Höfundur er trillukarl og formaður Strandveiðifélags Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Kjartan Páll Sveinsson Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar