Ungstirni gefur út sitt fyrsta lag Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. júní 2024 16:55 Lagið er það fyrsta sem Arnaldur gefur frá sér. Arnaldur Halldórsson Menntskælingurinn, söngvarinn og leikarinn Arnaldur Halldórsson hefur gefið frá sér sitt fyrsta lag. Það heitir Tengist þér og var gefið út ásamt tónlistarmyndbandi 21. júní síðastliðinn. Arnaldur segir lagið fjalla um sígildasta viðfangsefni popplaga frá örófi alda, nefnilega ástina.
Nánar tiltekið segir Arnaldur að lagið sé um tiltekinn dag í skammdeginu þegar ekkert virtist ganga. Inntur eftir lýsingu á laginu segir Arnaldur að það sé spes. „Þetta er lag sem ég samdi einhvern tímann held ég í jólafríinu. Svo er ég búinn að vera að vinna að því síðan. Þetta er spes lag, finnst mér allavega. Þetta er um þetta klassíska, ástina. En ég sé þetta lag sem einhvern einn dag sem mér leið eitthvað skryngilega og þetta voru orðin sem komu út,“ segir Arnaldur. Lagið var framleitt af Arnaldi sem samdi einnig textann. Arnaldur samdi einnig lagið en undir söng Arnaldar spilar Þórhildur Þorsteinsdóttir á bassa og Valgerður Birna Magnúsdóttir syngur bakraddir. Arnaldur er enginn græningi í heimi tón- og sviðslista þrátt fyrir ungan aldur. Eins og fram kom bar Arnaldur sigur úr býti í Jólastjörnu Björgvins árið 2017 en Arnaldur hefur einnig leikið og sungið í sýningum á borð við Matthildi og Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu. Auk þess hefur hann talsett teiknimyndum og tekið þátt í ýmsum verkefnum og sýningum á sviði sviðslista. Tónlistarmyndbandið við lagið Tengist þér má sjá á Instagram-síðu Arnaldar eða með því að smella hér. Arnaldur er að vinna í breiðskífu sem hann stefnir á að gefa út í haust. Hann segir plötuna ekki tilbúna en lofar góðri sprengju.
Tónlist Mest lesið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið Krakkatían: Litla hafmeyjan, Pollapönk og lundar Lífið „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Menning Myndasyrpa úr Eyjum: „Út með kassann og áfram gakk“ Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Fréttatía vikunnar: Verslunarmannahelgin, forsetaheimsókn og mannasaur Lífið Robert Wilson er látinn Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira