Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Ólafur Björn Sverrisson skrifar 1. júlí 2024 23:50 Viktor Orban í Brussel í dag. Ungverjaland tók forsæti innan leiðtogaráðs ESB í dag. getty Búist er við því að Viktor Orban forsætisráðherra Ungverjalands heimsæki Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í vikunni. Orban hefur verið sá leiðtogi innan Evrópusambandsins sem hefur haft mestar efasemdir um fjárstuðning sambandsins við Úkraínu í stríði þeirra við Rússland.
Guardian greinir frá þessum tíðindum og hefur eftir heimildarmönnum innan ungversku ríkisstjórnarinnar að búist sé við því að Orban láti sjá sig í Kænugarði á morgun. Í ljósi afstöðu Orban gagnvart innrásarstríði Rússa koma þessi tíðindi mörgum á óvart. Orban hefur enn ekki heimsótt nágrannaríkið Úkraínu frá því stríðið hófst. Heimsóknin gæti tengst því að Ungverjaland tók forsæti innan leiðtogaráðs Evrópusambandsins í dag, og heldur því út árið. Guardian hefur sömuleiðis eftir heimildarmanni innan úr stjórnsýslu í Úkraínu að von sé á Orban til Kænugarðs á morgun, þriðjudag. „Orban verður hér á morgun, ef ekkert breytist.“ Þá segir að Orban hafi sett þá forsendu fyrir fundinum að málefni ungverskumælandi íbúa Úkraínu í vesturhluta landsins komist í betra horf. Orban hefur verið sakaður um að nýta sér málefni þeirra sem ástæðu fyrir því að tala á mildari nótum um hernaðaraðgerðir Rússa í Úkraínu.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Evrópusambandið Ungverjaland Mest lesið Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Ætla að hernema Gasaströndina Erlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Innlent Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Innlent Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Veður Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Innlent Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Erlent Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Innlent „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Innlent Fleiri fréttir Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Fjarhægrimaður sigurstranglegastur í forsetakosningum Rúmena Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ PAP vann stórsigur í Singapúr Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Verkamannaflokkurinn bar sigur úr býtum Íbúar Nuuk orðnir tuttugu þúsund Maður sem lét snáka bíta sig 200 sinnum lykill að tímamótamóteitri Umsetin af krókódílum í 36 klukkutíma eftir nauðlendingu Birti mynd af sér í páfaskrúða Sögulegur sigur Umbótaflokks og skipbrot stóru flokkanna tveggja Kosningar í Ástralíu: Fylgi Íhaldsflokksins dvínar vegna framgöngu Trump Fyrirgefur fjölskyldunni og leitar sátta Gera úkraínsk ungmenni að sjálfsmorðssprengjumönnum Brand fær að ganga laus á meðan réttað er yfir honum Flokka Valkost fyrir Þýskaland sem öfgasamtök Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Drengnum sleppt en fleiri handteknir Munaði sex atkvæðum Waltz bolað úr embætti af Trump vegna Signal skilaboðanna Var svo „þreyttur á öllu“ að hann ákvað að aka inn í þvögu barna Börnum haldið innilokuðum í „hryllingshúsi“ í fleiri ár Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sjá meira