Tryggjum Svandísi á þing Hópur stuðningsfólks Svandísar Svavarsdóttur skrifar 29. nóvember 2024 07:31 Í kosningabaráttunni sem er að renna sitt skeið hefur stundum heyrst að kjósendur vilji helst kjósa fólk en ekki flokka, enda sé gott fólk í mörgum flokkum. Við sem hér skrifum heyrum þetta ekki hvað síst nefnt í sömu andrá og nafn Svandísar Svavarsdóttur, formanns VG og oddvita í Reykjavík suður. Þau sem á eftir henni koma á lista taka það ekki persónulega, enda fer ekkert milli mála að hún er einstök stærð í íslenskri pólitík. Við vitum öll hvað býr í Svandísi. Hún hefur árum saman sýnt okkur það. Fyrst sem borgarfulltrúi, þegar hún setti fótinn niður í REI-málinu svokallaða þegar samkrull stjórnmála og viðskiptalífs fór úr böndunum á kostnað almannahagsmuna. Síðar á Alþingi, þar sem hún hefur oft lagt allt í sölurnar, þar með talið sjálfa sig, til að standa vörð um hagsmuni almennings og náttúru. Hún kaus ætíð sem umhverfisráðherra að láta náttúruna njóta vafans frekar en skammsýna hagsmuni atvinnu- og viðskiptalífs. Hún hafði framsýni og hugrekki til að virkja samstöðu þeirra á Alþingi sem vilja að konur ráði yfir eigin líkama, og undir hennar forystu kláruðu þau það sem Rauðsokkurnar hófu og breyttu lögum um þungunarrof. Sem heilbrigðisráðherra stóð hún alltaf með fagfólkinu sem stýrði okkur í gegnum heimsfaraldur þrátt fyrir pólitískan þrýsting úr öllum áttum. Sem matvælaráðherra tók hún hugaða ákvörðun um að standa með dýravelferð og náttúruvernd og gegn þeirri ómannúðlegu tímaskekkju sem hvalveiðar eru. Þetta eru bara nokkur dæmi um þann kjark sem í Svandísi býr og hvað hún stendur fyrir. Svandís stendur gegn sérhagsmunum og fyrir almannahagsmuni. Hún stendur með náttúrunni gegn yfirgangi og tilgangslausri gróðafíkn. Hún stendur gegn öfgahægri sem vinnur gegn kvenfrelsi – og þeir þola hana ekki fyrir það. Hún er þrándur í þeirra götu. Ef það er engin Svandís á Alþingi er leiðin greiðari fyrir slík öfl að völdunum. Tíminn er núna – stöndum með Svandísi fyrir umhverfið og réttlátara samfélagi. Við kjósum Svandísi Svavarsdóttur og Vinstri græn laugardaginn 30. nóvember. Aðalbjörg Árnadóttir, leikkona og leikstjóri Andrea Jóhannsdóttir, bókasafnsfræðingur Anna Sigga Helgadóttir, söngkona Anna Þórhildur Gunnarsdóttir, píanisti Arnaldur Grétarsson, sviðsstjóri Arnbjörg Soffía Árnadóttir, stærðfræðingur Auður Alfífa Ketilsdóttir, leiðbeinandi og leiðsögumaður Árni Hjartarson, jarðfræðingur Ásdís Ingólfsdóttir, rithöfundur og kennari Áslaug Jónsdóttir, bókverkakona Bára Gísladóttir, tónskáld og kontrabassaleikari Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor Bergþóra Benediktsdóttir, ráðgjafi Bergþóra Hrund Ólafsdóttir, mannauðsstjóri Bjarni Þorsteinsson, ritstjóri Björn Valur Gíslason, skipstjóri Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands Daníel E. Arnarsson, háskólanemi Egill Ástráðsson, viðskiptafræðingur Egill Gautason, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands Einar Ólafsson, ljóðskáld og frv. bókavörður Erna Guðrún Árnadóttir, sérfræðingur Eva Rún Snorradóttir, rithöfundur og listakona Eyrún Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur Finnbogi Pétursson, myndlistarmaður Fríða Rós Valdimarsdóttir, sérfræðingur Gerður Kristný, skáld Gísli Garðarsson, skrifstofumaður Grace Achieng, framkvæmdastjóri Gró Einarsdóttir, sérfræðingur við Rannsóknarmiðstöð háskólans á Akureyri Guðmundur Kristbergsson, ferðaþjónustubóndi Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ Guðrún St. Guðbrandsdóttir, kennari og forseti Hinsegin Vesturlands Gyða Valtýsdóttir, tónlistarkona Hadda Hreiðarsdóttir, markaðsstjóri Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, framkvæmdastýra Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjárbóndi og háskólanemi Helga Dögg Ólafsdóttir, grafískur hönnuður Hermann B. Valsson lýðheilsufræðingur og kennari Hildur Þóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Pure Natura Hjördís Hildigunnur Friðjónsdóttir, kennari Hrund Ólafsdóttir, bókmenntafræðingur og leikskáld Hugrún R. Hólmgeirsdóttir, framhaldsskólakennari Ingi Ragnar Ingason, kvikmyndagerðarmaður Ingibjörg Daníelsdóttir, bóndi og kennari Ingibjörg Hjartardóttir, rithöfundur Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, listakona Ísfold Rán Grétarsdóttir, háskólanemi Jasmina Vajzovic, stjórnmálafræðingur Jóna Hlíf Halldórsdóttir, myndlistakona Jónína Riedel, náms- og starfsráðgjafi Jovana Pavlović, mannfræðingur Júlía Hreinsdóttir, fagstjóri táknmálskennslu Katrín Guðbjartsdóttir, sviðslistakona Kristín I. Pálsdóttir, talskona Kristína Ragnarsdóttir, kennari Katrín Rut Bessadóttir, verkefnastjóri Kristinn Schram, dósent Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt, eftirlaunaþegi Kristján Ketill Stefánsson, lektor Lára Jóna Þorsteinsdóttir, uppeldis- og kennslufræðingur Laufey Auður Kristjánsdóttir, heldri borgari Margrét Auður Jóhannesdóttir, táknmálstúlkur Margrét Baldursdóttir, táknmálstúlkur Oddur Sigurjónsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi Ólafur Halldórsson, háskólanemi Ólafur S. Andrésson frv. prófessor Pétur Heimisson, læknir Rakel McMahon, myndlistarkona og kennari Rannveig Sverrisdóttir, lektor Rebekka Hlín Rúnarsdóttir, jarðfræðingur Róbert Marshall, leiðsögumaður Rún Halldórsdóttir, svæfinga- og gjörgæslulæknir Rúnar Gíslason, lögreglufulltrúi Sara Guðmundsdóttir, bókari Sigfús Ólafsson, viðskiptafræðingur Sigríður Eir Zophoníasardóttir, kennari og listakona Sigríður María Atladóttir, hjúkrunarfræðingur Sigrún Alba Sigurðardóttir, rithöfundur og sýningarstjóri Sigrún Birna Steinarsdóttir, landfræðingur Sigrún Helgadóttir, líffræðingur og rithöfundur Sigrún Hjartardóttir, ráðgjafi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir, verkefnastjóri rannsókna Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, ónæmisfræðingur Sigurjón Helgason, áfengis- og vímuefnaráðgjafi á eftirlaunum Sigurlaug Brynjólfsdóttir, leikskólaliði Sigursteinn Másson, fjölmiðlamaður Skúli Arnlaugsson, hugbúnaðarsérfræðingur Stefán Pálsson, sagnfræðingur Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur Steinunn Rögnvaldsdóttir, félags- og kynjafræðingur Steinþór Rafn Matthíasson, hönnuður Steinþóra Jónsdóttir, sjúkraþjálfari og verkefnastjóri Sunna Áskelsdóttir, votlendissérfræðingur Svanfríður Halldórsdóttir, húsfreyja Thelma Harðardóttir, verkefnastjóri Toshiki Toma, prestur Valgerður H. Bjarnadóttir, félagsráðgjafi Vilhelmína Haraldsdóttir, læknir Þór Steinarsson, veitingamaður Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, kennari Þóra Magnea Magnúsdóttir sérkennslustjóri Þórir Viðarsson, framkvæmdastjóri Þorleifur Gaukur Davíðsson, tónlistarmaður Þórunn Sigurðardóttir, leikstjóri Þröstur Brynjarsson, kennari Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Vinstri græn Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Mest lesið Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir Skoðun Ég á þetta ég má þetta Arnar Atlason Skoðun Fjórða þorskastríðið er fram undan Gunnar Smári Egilsson Skoðun Vilja komast í orku Íslands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Röng klukka siðan 1968: Kominn tími á breytingar Erla Björnsdóttir Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Ha ég? Já þú! Ekki satt! Hver þá? Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samfélagslegur spegill lögreglumannsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Rétt klukka síðan 1968: Höldum í síðdegisbirtuna Erlendur S. Þorsteinsson skrifar Skoðun Traust, von og tækifæri á Norðausturlandi Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar Skoðun Skilin eftir á SAk Gunnhildur H Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hagræn áhrif íþrótta og mikilvægi þeirra á Íslandi Helgi Sigurður Haraldsson skrifar Skoðun Vegið að heilbrigðri samkeppni Herdís Dröfn Fjeldsted skrifar Skoðun Frjósemisvitund ungs fólks Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Ökuréttindi á beinskiptan og sjálfskiptan bíl Þuríður B. Ægisdóttir skrifar Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Ísland á krossgötum: Gervigreindarver í stað álvera! Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Endurreisn Grindavíkur Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun 57 eignir óska eftir eigendum Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Vindhanagal Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Vilja komast í orku Íslands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson skrifar
Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar