Van Dijk: Átti augljóslega að vera hans annað gula spjald Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2025 22:44 Virgil van Dijk var ekki sáttur með að leikmaður Tottenham slapp við sitt annað gula spjald. Getty/Sebastian Frej/ Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, var mjög ósáttur með að Svíinn Lucas Bergvall hafi sloppið við rauða spjaldið í 1-0 sigri Tottenham á Liverpool í enska deildabikarnum í kvöld.
Bergvall fékk ekki gult spjald þrátt fyrir tæklingu á Konstantinos Tsimikas og skoraði síðan sigurmarkið stuttu síðar. „Þetta átti augljóslega að vera hans annað gula spjald. Það var á alveg á hreinu og svo mínútu síðar skoraði hann sigurmarkið. Svona er þetta bara. Dómarinn gerði mistök að mínu mati og ég sagði honum það. Hann heldur kannski annað. Þetta var nokkuð augljóst og allir á hliðarlínunni vissu það,“ sagði Virgil van Dijk. Lucas Bergvall skorar hér sigurmark Tottenham í leiknum í kvöld.Getty/ Julian Finney „Það er línuvörður þarna og fjórði dómari líka. Það eru líka myndbandsdómarar og samt fær hann ekki sitt annað gula spjald. Ég er ekki að segja að þetta sá ástæðan fyrir því að við töpuðum leiknum en þetta var stórt augnablik í leiknum,“ sagði Van Dijk. „Við spiluðum á móti mjög áköfu liði með góða sóknarmenn sem héldu áfram að hlaupa og gera okkur lífið leitt. Við bjuggum til færi, ekki nein dauðafæri að mínu mati, en nógu góð færi sem áttu að skila okkur marki,“ sagði Van Dijk. „Við áttum að gera betur á tímapunktum í leiknum. Það er hluti af fótboltanum. Við spiluðum vel á stundum en þeir vörðust miklu betur en þegar við mættum þeim fyrir nokkrum vikum síðan. Núna er bara hálfleikur og ég hlakka til að fá þá í heimsókn í seinni leiknum,“ sagði Van Dijk.
Enski boltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira