BYKO með ánægðustu viðskiptavinina áttunda árið í röð BYKO 16. janúar 2025 14:05 BYKO hlaut hæstu einkunn áttunda árið í röð í flokki byggingavöruverslana í Íslensku ánægjuvoginni sem var kynnt í morgun. Fagnað var í verslunum BYKO í dag. Áttunda árið í röð hlýtur BYKO hæstu einkunnina í flokki byggingavöruverslana í Íslensku ánægjuvoginni en niðurstöður hennar voru kynntar á Grand Hótel í morgun. BYKO hefur sigrað flokkinn frá því mælingar hófust 2018. „
Ég þakka þennan góða árangur undanfarin ár fyrst og síðast góðu starfsfólki okkar sem myndar öfluga liðsheild,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO. „Við störfum eftir skýrri og eftirsóknarverðri framtíðarsýn og markmið okkar er ávallt að gera betur í dag en í gær og færa okkur nær þeirri framtíðarsýn sem við höfum sett okkur sem er að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins.“ Í ár voru birtar niðurstöður fyrir 48 fyrirtæki í 15 atvinnugreinum, þar af eru tíu fyrirtæki sem ekki hafa tekið þátt áður. Þetta er fjórða árið í röð sem BYKO hefur marktækt forskot á keppinautana sína samkvæmt skilgreiningum Íslensku ánægjuvogarinnar en það þýðir að BYKO getur lýst sig sem afdráttarlausan sigurvegara í sínum flokki og skartað gylltu merki Íslensku ánægjuvogarinnar. „Það er sannarlega frábær árangur að fá þessa viðurkenningu áttunda árið í röð og um leið óendanlega mikilvægt fyrir okkur í BYKO að uppskera svona áþreifanlega eins og til er sáð,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO. „Það er sannarlega frábær árangur að fá þessa viðurkenningu áttunda árið í röð og um leið óendanlega mikilvægt fyrir okkur í BYKO að uppskera svona áþreifanlega eins og til er sáð. Við lítum á Íslensku ánægjuvogina sem eins af okkar mikilvægustu mælikvörðum.“ Að sögn Sigurðar talar Íslenska ánægjuvogin, sem mælikvarði, beint inn í stefnu og framtíðarsýn BYKO sem er um leið að meginhlutverk fyrirtækisins og tilgangur fyrir tilvist þess sem snýr að því að þjónusta viðskiptavini sína og gera það betur en aðrir. „Að fá þessa merku viðurkenningu átta ár í röð með marktækum mun staðfestir það að BYKO nýtur mikils trausts og góðs orðspors á íslenskum byggingavörumarkaði, fyrir það erum við þakklát.“ Starfsfólk BYKO var ánægt með sigurinn í morgun. Á myndinni eru f.v. þau Arnar Steinn, Birta Ósk, Hildur Hlín og Finnbjörn. Fyrir starfsfólkið er slíkur árangur staðfesting á því að þrotlaus vinna undir skýrri framtíðarsýn skiptir máli og skilar árangri með áþreifanlegum árangri. „Ég er í það minnsta óendanlega stoltur yfir samstarfsfélögum mínum. Allir sigrar hafa jákvæð áhrif á starfsumhverfi, starfsánægju og veitir hvatningu og innblástur til að halda áfram á þeirri vegferð sem við erum á.“ Sigurður segir starfsfólk BYKO bera miklar þakkir til viðskiptavina sinna, fyrir það traust og þá tryggð sem þeir hafa sýnt í gegnum áratugina. „Hlutverk okkar er að mæta viðskiptavinum okkar þar sem þeir eru, uppfylla þeirra þarfir og væntingar og gera það betur en aðrir á þessum markaði. Það skiptir okkur einfaldlega miklu máli að viðskiptavinum okkar gangi vel með þau verkefni sem þeir eru að fást við á hverjum tíma. Hvort sem um ræðir smáar sem stórar framkvæmdir.“ Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sá Prósent um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni árið 2024.
Byggingariðnaður Íslenska ánægjuvogin Mest lesið Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Gengi Alvotech hrynur Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Viðskipti innlent „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Viðskipti innlent „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Viðskipti innlent 25 sagt upp í fiskvinnslu Viðskipti innlent Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Viðskipti innlent „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Viðskipti innlent Gengi Alvotech aldrei lægra Viðskipti innlent Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Bauhaus styrkir góð málefni fyrir jólin „Ég fæ hroll þegar fólk segist hafa notað sama lykilorðið í 20 ár“ Forvarnarverðlaun VÍS: „Öryggi er ekki samkeppnismál“ ÍMARk rýnir í markaðsheim framtíðarinnar Tengiltvinnari fyrir taugatrekkta Peltor og Dynjandi saman í 60 ár Framlína heilbrigðisþjónustunnar kallar eftir liðsauka Persónuleg reynsla varð að atvinnurekstri Rafmagnað fyrsta stefnumót við Nissan Ariya Í stuði í 130 ár: Virkjanir sem leystu af dísilvélar og knúðu síldarbæ KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Sjá meira