Ungir nágrannar heyrðu óvenjuleg hljóð frá heimili hjónanna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. febrúar 2025 14:32 Strandgata 34 og 36 í Neskaupstað. Hjónin bjuggu á tveimur hæðum í vinstri helmingi hússins. Unga fólkið sat í stofunni í hinum helmingi hússins og heyrði hvelli og hljóð eins og verið væri að færa til húsgögn. Já.is Menntaskólanemar sem bjuggu í íbúð sem deildi innvegg með hjónunum sem var ráðinn bani í Neskaupstað í ágúst í fyrra segjast hafa séð Alfreð Erling Þórðarson við hús hjónanna og heyrt þaðan hljóð og hvelli.
Þetta kom fram í vitnisburði unga fólksins við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Aðalmeðferðin í máli Alfreðs Erlings hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur á tíunda tímanum. Alfreð Erling, 46 ára Norðfirðingur, er ákærður fyrir að verða hjónum á áttræðisaldri sem hann þekkti til að bana á heimili þeirra í Neskaupstað í ágúst í fyrrasumar. Talið er að hann hafi verið í geðrofi, notað hamar og slegið fólkið endurtekið í höfuðið með verkfærinu með fyrrnefndum afleiðingum. Flestir hafi kannast við Alfreð Af vitnisburðinum að dæma eru tvö ungmennin búsett í samliggjandi húsi við heimili hjónanna og það þriðja var í heimsókn hjá þeim. Um er að ræða tvo drengi við átján ára aldur og eina stúlku. Drengirnir sögðust hafa verið að ræða Alfreð Erling þegar þau voru akandi í bíl þarna í bænum umræddan dag. Verjandi Alfreðs spurði annan piltanna hvers vegna þeir hefðu verið að ræða hann. „Það var engin ástæða. Við vorum bara eitthvað að ræða rugludallana í þessum bæ. Það vita flestir hverjir hann er að nafninu. Allavega þssir sem eru þarna fyrir austan, Kannast allavega eitthvað við hann.“ Heyrðu hvelli og hljóð Unga konan ók bíl sínum eftir götunni á heimleið þennan dag og drengirnir sáu Alfeð standa við útidyrahurðina hjá gömlu hjónunum. Þeir horfðu á eftir honum ganga inn til hjónanna en tóku ekki eftir því hvort hann hefði bankað eða ekki. Svo hefðu þau verið í stofunni og heyrt hljóð úr hinni íbúðinni sem minntu annars vegar á að verið væri að færa til húsgögn og hins vegar hvelli. Það hefði verið óvenjulegt að heyra hljóð frá nágrönnum sínum því þaðan heyrðist yfirleitt ekki neitt. Þau hefðu einu sinni stoppað sjónvarpið til að hlusta frekar og svo farið út til að horfa í áttina að hinum hluta hússins. Þar hefðu þeir séð Alfreð Erling. Þau hefðu svo farið aftur inn í íbúðina sína. Þau hefðu ekki haft áhyggjur af neinu og ekki áttað sig á neinu fyrr en lögreglu bar að garði daginn eftir.
Rannsókn á andláti hjóna í Neskaupstað Dómsmál Fjarðabyggð Tengdar fréttir Hinn grunaði hafi verið svakalega duglegur og greindur Verslunareigandi í Neskaupstað segir Alfreð Erling Þórðarson sem ákærður er fyrir að ráða hjónum í bænum bana hafa verið svakalega duglegan, greindan og færan í höndunum. Undanfarin ár hafi greinilega farið að halla á ógæfuhliðina sem sjá mátti á arki hans um bæinn. 10. febrúar 2025 11:42 Sagðist á leið í Hallgrímskirkju fyrir guð eða djöfulinn Lögregluþjónn sem kom að handtöku Alfreðs Erlings Þórðarsonar á Snorrabraut í ágúst í fyrra segir Alfreð hafa verið mjög rólegan, samvinnuþýðan og rætt um dauðann, djöfulinn og guð. Upptökurnar eru til á búkmyndavél lögreglumannsins. 10. febrúar 2025 10:41 Aðkoman vægast sagt ekki fögur Lögreglukona sem stóð vaktina í Neskaupstað þann 22. ágúst þegar útkall barst að Strandgötu í bænum segir litinn á blóðinu baðherbergisgólfinu hafa bent til þess að blóðið var ekki nýtt. Nokkur tími hefði liðið frá því atburðirnir hefðu átt sér stað. 10. febrúar 2025 10:16 Grunaður morðingi staldraði stutt við í dómsal Alfreð Erling Þórðarson sem sakaður er um að hafa banað eldri hjónum í Neskaupstað í ágúst í fyrra óskaði eftir því að tjá sig ekkert við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann vísaði til fyrri skýrslugjafar sinnar hjá lögreglu. 10. febrúar 2025 09:37 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira
Hinn grunaði hafi verið svakalega duglegur og greindur Verslunareigandi í Neskaupstað segir Alfreð Erling Þórðarson sem ákærður er fyrir að ráða hjónum í bænum bana hafa verið svakalega duglegan, greindan og færan í höndunum. Undanfarin ár hafi greinilega farið að halla á ógæfuhliðina sem sjá mátti á arki hans um bæinn. 10. febrúar 2025 11:42
Sagðist á leið í Hallgrímskirkju fyrir guð eða djöfulinn Lögregluþjónn sem kom að handtöku Alfreðs Erlings Þórðarsonar á Snorrabraut í ágúst í fyrra segir Alfreð hafa verið mjög rólegan, samvinnuþýðan og rætt um dauðann, djöfulinn og guð. Upptökurnar eru til á búkmyndavél lögreglumannsins. 10. febrúar 2025 10:41
Aðkoman vægast sagt ekki fögur Lögreglukona sem stóð vaktina í Neskaupstað þann 22. ágúst þegar útkall barst að Strandgötu í bænum segir litinn á blóðinu baðherbergisgólfinu hafa bent til þess að blóðið var ekki nýtt. Nokkur tími hefði liðið frá því atburðirnir hefðu átt sér stað. 10. febrúar 2025 10:16
Grunaður morðingi staldraði stutt við í dómsal Alfreð Erling Þórðarson sem sakaður er um að hafa banað eldri hjónum í Neskaupstað í ágúst í fyrra óskaði eftir því að tjá sig ekkert við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann vísaði til fyrri skýrslugjafar sinnar hjá lögreglu. 10. febrúar 2025 09:37