Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. febrúar 2025 08:30 Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson hafa lengi fylgst að. Jafnaldrarnir og vinirnir Elvar Már Friðriksson og Martin Hermannsson áttu stóran þátt í að Ísland tryggði sér sæti á EM í körfubolta með sigri á Tyrklandi í Laugardalshöll í gær. Eftir leikinn birti umboðsmaður þeirra félaga skemmtilega gamla mynd af þeim sem sýnir hversu lengi þeir hafa fylgst að.
Íslendingar unnu Tyrki með tólf stigum, 83-71, í lokaleik sínum í undankeppni EM 2025 í gær. Með sigrinum komst Ísland í þriðja sinn í lokakeppni Evrópumótsins. Martin var stigahæstur í íslenska liðinu í leiknum í gær með 23 stig. Hann tók einnig þrjú fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Elvar skoraði þrettán stig, tók fjögur fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Elvar og Martin eru jafnaldrar, fæddir 1994, og hafa verið miklir vinir nánast frá því þeir voru í vöggu. Feður þeirra, Friðrik Ragnarsson og Hermann Hauksson, léku saman með landsliðinu og Njarðvík á sínum tíma. Christos Lazarou er umboðsmaður þeirra Elvars og Martins og eftir leikinn birti hann skemmtilegar myndir af vinunum undir yfirskriftinni: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur. Á fyrri myndinni eru Elvar og Martin barnungir en sú seinni er frá leiknum í Höllinni í gær og sýnir þá fagna EM-sætinu. How it started: How it’s going:@hermannsson15 @ElvarFridriks pic.twitter.com/W9z9VRbYNf— Christos Lazarou (@ChristosLazarou) February 23, 2025 Martin er á leið á sitt þriðja Evrópumót en hann var með 2015 og 2017. Elvar lék á EM 2017. Dregið verður í riðla fyrir EM 2025 þann 27. mars næstkomandi.
EM 2025 í körfubolta Landslið karla í körfubolta Mest lesið Sjáðu brot af því besta úr enska boltanum í dag Fótbolti „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Körfubolti Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Körfubolti Juventus landaði sigri í fyrsta leik Spalletti Fótbolti Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Körfubolti Dagskráin í dag: Enski boltinn og margt fleira Sport Liverpool loks á sigurbraut á ný Enski boltinn Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Enski boltinn Harma rasíska og transfóbíska grein liðsfélaga Sveindísar Fótbolti Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Körfubolti Fleiri fréttir „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 86-82 | Þarf ekki alltaf að vera fallegt ef það virkar „Varnarleikur snýst eiginlega bara um að nenna“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-90 | Taplausir Grindvíkingar kjöldrógu Val „Búnir að sýna hvað við getum verið lélegir“ KR - ÍA 109-75 | KR-ingar sýndu allar sínar bestu hliðar þegar þeir burstuðu Skagamenn Íslandsmeistararnir frá því fyrir sextíu árum heiðursgestir í kvöld „Hann ætti bara að skrifa afsökunarbiblíuna“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 85-84| Njarðvík fyrstar til að leggja Grindavík af velli Ótrúleg dramatík í Garðabæ og á Sauðárkróki Landsliðsmennirnir öflugir í Evrópu Sjá meira