Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen X977 27. febrúar 2025 10:05 Tommi Steindórs, dagskrárstjóri X977, er umsjónarmaður Ólsen ólsen Íslandsmeistaramótsins. „Það er löngu kominn tími til að endurvekja það enda er Ólsen ólsen líklega mest spilaða spil Íslandssögunnar,“ segi hann. Útvarpsstöðin X977, í samstarfi við Reykjavík Brewing Company, blæs til Íslandsmeistaramóts í Ólsen ólsen laugardaginn 15. mars. Þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem slíkt mót er haldið og má því búast við miklu fjöri. „
Ég held að þetta sé fyrsta Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen sem er haldið hér á landi síðan það var haldið í ölhúsinu Gullöldinni í Grafarvogi árið 2011,“ segir Tommi Steindórs, dagskrárstjóri X977 og umsjónarmaður mótsins. „Það er því löngu kominn tími til að endurvekja það enda er Ólsen ólsen líklega mest spilaða spil Íslandssögunnar og um leið einfalt og skemmtilegt spil sem hentar fólki á öllum aldri.“ Íslandsmeistaramótið hefst kl. 15 og fer fram í bruggstofu Reykjavík Brewing Company sem er staðsett í gamla Tónabíói, Skipholti 33, í Reykjavík. Hugmyndin að Íslandsmeistaramótinu kviknaði í sólinni á Tenerife á síðasta ári þar sem Tommi sigraði einmitt Ólsen ólsen mótið Tenerife Invitational. Keppendur voru reyndar bara tveir en bikar er bikar, ekki satt? Það er pláss fyrir 32 keppendur í mótinu og er keppt með útsláttarfyrirkomulagi. „Tveir keppendur keppa á móti hvor öðrum og þarf að vinna þrjú spil til að komast í næstu umferð. Í lokin keppa svo tveir keppendur um íslandsmeistaratitilinn.“ Sjálfur er Tommi mikill aðdáandi Ólsen ólsen og grípur reglulega í spilastokkinn með fjölskyldumeðlimum og vinum. „Hugmyndin að þessu Íslandsmeistaramóti kviknaði á Tenerife í febrúar í fyrra. Þá skipulagði ég Ólsen ólsen mót sem hét Tenerife Invitational þar sem ég stóð uppi sem sigurvegari. Keppendur voru reyndar bara tveir, ég og kærastan mín, en það er allt önnur saga. Í kjölfarið kviknaði sú hugmynd að halda stærra mót sem er nú að verða að veruleika í næsta mánuði.“ Allir geta skráð sig til leiks, svo framarlega að viðkomandi sé orðinn 18 ára. „Síðan höfum við tekið nokkur pláss frá fyrir gamlar Ólsen ólsen kempur og aldrei að vita nema þar leynist nokkur þekkt nöfn sem ætla að láta ljós sitt skína.“ Nánari upplýsingar má finna á Facebook síðu X977 og skráning fer fram á Tix en þátttökugjaldið er 2.500 kr. Öll mótsgjöld fara í pott sem sigurvegari mótsins vinnur, eða 80.000 kr.
X977 Mest lesið Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Menning Stjörnurnar á hrekkjavökunni: Louvre-þjófur og vampírur Lífið Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Menning Fréttatía vikunnar: Ríkislögreglustjóri, fellibylur og rasisti Lífið Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Lífið Breytti um nafn eftir djúpa ástarsorg Tónlist Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Tíska og hönnun Nýr skemmti- og spjallþáttur á Sýn Lífið Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ Lífið Atli Steinn fann ástina á ný Lífið Fleiri fréttir Vetrartískan er mætt í Boozt með kósýheit Nýir réttir Serrano aðgengilegir í LifeTrack appinu Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu „Við eigum meira blóð en blóðbankinn!“ Flytja alla Springsteen slagarana í Hörpu Frábær árangur í meðferðarstarfi Kalklitir og Slippfélagið mála framtíðina saman Hárolía, vinur eða óvinur hársins? Dineout gjafabréf er jólagjöfin í ár Hjálpa öðrum að eignast lítil kraftaverk Þarf alltaf að vera vín? Trúði varla eigin augum þegar hún sá fyrir og eftir myndirnar Úrval Útsýn hefur svarað kalli um björgunarfargjöld Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Sjá meira