Rikki G ærðist þegar Hákon skoraði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. mars 2025 13:03 Hákon Arnar Haraldsson skorar markið gegn Borussia Dortmund. ap/Martin Meissner Hákon Arnar Haraldsson skoraði jöfnunarmark Lille gegn Borussia Dortmund í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær.
Þetta var annað mark Hákonar í Meistaradeildinni í vetur og fyrsta mark Íslendings í útsláttarkeppninni síðan Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrir Barcelona gegn Liverpool 6. mars 2007. Karim Adeyemi kom Dortmund yfir á 22. mínútu í leiknum í gær og þýska liðið var með forystu í hálfleik. Á 68. mínútu jafnaði Hákon metin. Jonathan David renndi þá boltanum inn fyrir vörn Dortmund á Hákon sem skoraði framhjá Gregor Kobel, markverði heimamanna. Ríkharð Óskar Guðnason, sem lýsti leiknum, hreinlega ærðist þegar Hákon kom boltanum í netið eins og heyra má í myndbandinu af markinu sem má sjá hér fyrir neðan. Ekki nóg með að Hákon hafi skorað mikilvægt mark heldur var hann valinn maður leiksins af UEFA. Skagamaðurinn var sáttur eftir leikinn. „Það fylgir því stórkostleg tilfinning að skora hér fyrir framan áttatíu þúsund manns og sérstaklega af því að við náðum líka jafnteflinu. Þetta var mjög mikilvægt mark og ég er því mjög ánægður með það,“ sagði Hákon. Seinni leikur Lille og Dortmund fer fram á Stade Pierre-Mauroy miðvikudaginn 12. mars.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Sjá meira