Fótbolti

Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið

Sindri Sverrisson skrifar
Sophia Wilson missir af lykilleikjum í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni.
Sophia Wilson missir af lykilleikjum í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Getty/Al Sermeno

Sophia Wilson, framherji Portland Thorns í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta, hefur verið úrskurðuð í tveggja leikja bann vegna rauða spjaldsins sem hún fékk fyrir að kippa í hárið á Laís Araújo í leik gegn Boston Legacy um síðustu helgi.

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan en Wilson togaði í hár Araújo þegar Portland-liðið var á leið fram í sókn og var rekin af velli á 22. mínútu.

Wilson fékk sjálfkrafa eins leiks bann vegna rauða spjaldsins en nú hefur aganefnd bætt öðrum leik við bannið.

Portland endaði á að tapa gegn Boston, 4-2, og er nú jafnt Angel City, liði Sveindísar Jane Jónsdóttur, að stigum í 6.-7. sæti.

Wilson er lykilmaður hjá Thorns en liðið verður án hennar á ögurstundu vegna bannsins. Aðeins þrjár umferðir eru eftir fram að úrslitakeppninni en þær verða spilaðar að loknu yfirstandandi landsleikjahléi.

Átta lið fara í úrslitakeppnina og er Seattle Reign í 9. sæti með 40 stig, þremur stigum á eftir Portland og Angel City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×