Fótbolti

Leik­menn lands­liðsins sekir um aga­brot

Andri Broddason skrifar
Búið er að ræða við þá leikmenn landsliðshópsins sem brutu af sér.
Búið er að ræða við þá leikmenn landsliðshópsins sem brutu af sér. Anton/Vísir

Einhverjir leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta hafa gerst sekir um agabrot í nýliðnum landsliðsglugga. Starfsmenn landsliðsins hafa fundað vegna málsins.

Fótbolti.net greinir frá málinu en þar er haft eftir Eysteini Pétri Lárussyni, framkvæmdastjóra KSÍ, þar sem hann segir að búið sé að ræða við bæði leikmennina sem brutu á sér og hópinn í heild sinni. Samkvæmt honum er búið að afgreiða málið og ekki verður meira gert í því.

Samkvæmt fótbolta.net var agabrotið áfengisneysla nokkurra leikmanna eftir landsleikinn gegn Búlgaríu. Hann var spilaður síðasta laugardag hér á Íslandi og virðist brotið hafa átt sér stað þá.

Hlaðvarpsþáttastjórnandinn Kristján Óli Sigurðsson staðfesti á samfélagsmiðlinum X að um er að ræða áfengisneyslu leikmanna. Hann heldur uppi hlaðvarpinu Þungavigtin ásamt Mikael Nikulássyni og Ríkharði Óskari Guðnasyni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×