Aðeins þúsund geta mætt á leikina mikilvægu við Noreg og Sviss Sindri Sverrisson skrifar 17. mars 2025 15:15 Aðdáendur íslenska landsliðsins gætu þurft að hafa hraðar hendur á morgun þar sem aðeins takmarkað magn miða er í boði á komandi leiki í Þjóðadeildinni. vísir/Anton Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta á fyrir höndum afar mikilvæga heimaleiki við Noreg og Sviss í Þjóðadeildinni í fótbolta. Miðasala á leikina hefst á morgun.
Leikirnir við Noreg og Sviss fara fram föstudaginn 4. apríl og þriðjudaginn 8. apríl, báðir klukkan 16:45. Leikið verður á Þróttarvelli og verða þetta fyrstu A-landsleikirnir sem þar fara fram. Stelpurnar okkar hafa áður spilað á Kópavogsvelli, þegar ekki er hægt að spila á Laugardalsvelli, en í þetta sinn varð Þróttarvöllur fyrir valinu og komast aðeins um 1.000 áhorfendur fyrir. Miðasalan fer fram á Stubb.is og er miðaverð 3.500 krónur fyrir fullorðna en 1.750 fyrir 16 ára og yngri. Ísland hóf Þjóðadeildina á tveimur útileikjum þar sem liðið gerði markalaust jafntefli við Sviss og tapaði 3-2 fyrir Frökkum. Liðið er því með eitt stig líkt og Sviss en Frakkland er efst með sex stig og Noregur með þrjú. Mikið er í húfi fyrir Ísland að halda sér í A-deild fyrir næsta tímabil en þá verður spilað um sæti á HM. Aðeins neðsta lið riðilsins fellur beint í B-deild en liðið í 3. sæti fer í umspil um að forðast fall. Efstu tvö liðin eru örugg um að halda sér í A-deild og fer efsta liðið auk þess í undanúrslit Þjóðadeildarinnar. Vonir standa til þess að framkvæmdum á Laugardalsvelli ljúki í tæka tíð svo að síðasti heimaleikur Íslands í Þjóðadeildinni, gegn Frakklandi 3. júní, verði leikinn þar. Ef það gengur ekki eftir fer sá leikur einnig fram á Þróttarvellinum.
Landslið kvenna í fótbolta Þjóðadeild kvenna í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Sjá meira