Viðskipti innlent

Lands­bankinn geri úr­bætur vegna lán­veitinga til lítilla og meðal­stórra fyrir­tækja

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Fjármálaeftirlitið hefur gert Landsbankanum að gera úrbætur.
Fjármálaeftirlitið hefur gert Landsbankanum að gera úrbætur. Vísir

Fjármálaeftirlitið hefur gert Landsbankanum að gera úrbætur eftir að athugun eftirlitsins leiddi í ljós að bankinn hafi gerst brotlegur við reglur í tengslum við lánveitingar til lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Ekki var þó talið tilefni til að beita viðurlögum gegn bankanum.

„Skjalfest gögn til staðfestingar á greiðslugetu lántakenda í úrtaki voru ekki fyrirliggjandi og ekki var með skipulögðum hætti lagt mat á áætlaða greiðslugetu viðskiptavinar og þannig kannað ítarlega hvort hann gæti staðið við framtíðarskuldbindingar sínar við bankann,“ segir meðal annars í niðurstöðu fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands sem birt var á föstudag en athugun eftirlitsins fór fram í desember í fyrra.

Þannig hafi Landsbankinn ekki uppfyllt tilteknar kröfur sem felast í lögum um fjármálafyrirtæki og viðmiðunarreglur Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar, EBA, um lánveitingar og eftirlit með þeim. Fjármálaeftirlitið hefur því farið fram á að innri endurskoðun bankans framkvæmi úttekt á því hvort úrbótakröfum hafi verið fullnægt og að grein verði gerð fyrir niðurstöðunum í skýrslu til fjármálaeftirlitsins.

Markmið athugunarinnar var að kanna hvort flokkun útlána á áhættustig í virðismatsferli bankans væru gerðar með réttum hætti. Við athugunina var einkum litið til tiltekinna greina Evrópureglugerða og laga um fjármálafyrirtæki sem lúta meðal annars að varfærniskröfum, því hvenær lántaki teljist ólíklegur til að greiða og hvort bankinn hagi mati sínu með réttum hætti. Sömuleiðis var markmið athugunarinnar að kanna framkvæmd bankans við mat á greiðslugetu lánþega sem fengið hafa ívilnandi skuldaúrræði frá bankanum og hvort flokkun þeirra lána séu fullnægjandi. Þá var markmiðið að kanna hvort niðurstöðurnar myndu kalla á endurflokkun lána, til dæmis færslu á annað áhættustig, að því er segir í niðurstöðunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×