Erlent

Sláandi tölur um af­lýst flug til Nuuk-flugvallar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Airbus-breiðþota Air Greenland lenti í fyrsta sinn í Nuuk í lok nóvembermánaðar.
Airbus-breiðþota Air Greenland lenti í fyrsta sinn í Nuuk í lok nóvembermánaðar. KNR/skjáskot

Hinn nýi alþjóðaflugvöllur Grænlendinga í Nuuk hefur lokast mun oftar vegna óveðurs en búist var við. Sláandi tölur hafa verið birtar um fjölda aflýstra flugferða frá áramótum.

Í fréttum Stöðvar 2 var rifjuð upp opnun nýs Nuuk-flugvallar þann 28. nóvember síðastliðinn. Mannfjöldi safnaðist þá saman við flugvöllinn til að sjá Airbus A330-breiðþotu Air Greenland, flaggskip grænlenska flugflotans, svífa inn til lendingar í beinu flugi frá Kaupmannahöfn.

Þetta var fyrsta lending farþegaþotu í höfuðstað Grænlands. Opnun vallarins sem alþjóðaflugvallar var sögð marka þáttaskil í samgöngum landsins við umheiminn.

Nýja flugbrautin í Nuuk er 2.200 metra löng. Myndin er tekin úr flugvél Isavia við flugprófanir á vellinum.Isavia

Það var fyrirfram vitað að flugvallarstæðið í Nuuk væri ekki jafn hagstætt og á gamla millilandavellinum í Kangerlussuaq, sem áður nefndist Syðri-Straumfjörður. Tölur sem Air Greenland hefur núna birt um raskanir vegna óveðurs í flugi frá Kaupmannahöfn til Nuuk hafa hins vegar reynst verri en flesta grunaði.

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru 32 flugferðir sem ýmist þurfi að aflýsa eða flugvélin þurfti frá að hverfa. Á sama tíma í fyrra, þegar flogið var til Kangerlussuaq, var þetta aðeins ein ferð frá Kaupmannahöfn sem féll niður vegna veðurs.

Þotan kvaddi gamla flugvöllinn formlega þann 26. nóvember síðastliðinn, tveimur dögum fyrir opnun vallarins í Nuuk, sem er mun berskjaldaðri gagnvart vindi og veðri en sá í Kangerlussuaq.

Forstjóri Air Greenland, Jacob Nitter Sørensen, segir þessar raskanir í Nuuk hafa verið óeðlilega miklar. Þær hafi haft gríðarleg áhrif á félagið og þyngt reksturinn.

Þota Grænlendinga í flugtaki frá Kangerlussuaq þann 26. nóvember síðastliðinn í síðasta reglubundna áætlunarfluginu þaðan til Kaupmannahafnar.KNR/skjáskot

Hann vill þó meina að þetta sé ekki það sem búast megi við í framtíðinni. Nýjar tæknilausnir á Nuuk-flugvelli muni gera það mögulegt að lenda þar jafnvel í mjög slæmu veðri.

Þá séu truflanir á flugi í vetur ekki alfarið veðri um að kenna heldur megi að hluta skýra þær með því að starfsmenn félagsins séu enn að læra á breyttar aðstæður. Býst forstjórinn við að raskanir á flugi um Nuuk muni með tímanum ekki verða meiri en það sem telja megi eðlilegt.


Tengdar fréttir

Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli

Grænlendingar fagna í dag nýjum alþjóðflugvelli í Nuuk. Opnun vallarins er sögð marka þáttaskil í samgöngum Grænlands við umheiminn og var almenningi boðið til hátíðar með tónleikum og veisluhöldum í dag og flugeldasýningu í kvöld.

Grænlendingar fagna nýrri Airbus-breiðþotu

Grænlendingar fögnuðu í fyrradag komu nýrrar breiðþotu Air Greenland. Þotan tekur yfir þrjúhundruð farþega í sæti og er dýrasti farkostur sem þessi næsta nágrannaþjóð Íslendinga hefur eignast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×