Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin úr veislunni í Mosó og vítið sem Fram fékk

Sindri Sverrisson skrifar
Benjamin Stokke skoraði tvö marka Aftureldingar í gærkvöld.
Benjamin Stokke skoraði tvö marka Aftureldingar í gærkvöld. Stöð 2 Sport

Afturelding varð í gær fyrsta liðið til að vinna KR í Bestu deild karla í fótbolta á þessari leiktíð, í mögnuðum 4-3 leik í Mosfellsbæ. Fram vann Vestra 1-0 en ÍBV og KA gerðu markalaust jafntefli. Mörk gærdagsins má nú sjá á Vísi.

Guðmundur Andri Tryggvason og Aron Sigurðarson komu KR í 2-0 á fyrstu tíu mínútunum í Mosó í gær. KR-ingar virtust þannig ætla að skemma stemninguna hjá heimamönnum sem höfðu verið taplausir á heimavelli og fengu að heyra nýtt stuðningslag úr smiðju Steinda Jr. og Dóra DNA í sólinni í gær.

En Benjamin Stokke, sem lék með Breiðabliki í fyrra, jafnaði metin með tveimur mörkum sitt hvoru megin við leikhléið. Eiður Gauti Sæbjörnsson kom þó KR í 3-2 á 59. mínútu en Aron Elí Sævarsson og Hrannar Snær Magnússon sáu til þess að Afturelding fengi öll þrjú stigin.

Eins og fyrr segir þá gerðu ÍBV og KA markalaust jafntefli í frekar tilþrifalitlum leik á Þórsvelli í Vestmannaeyjum. KA er því í fallsæti, með fimm stig, en ÍBV í 9. sæti með átta stig.

Framarar náðu hins vegar að stöðva flug Vestra í Úlfarsárdalnum og unnu 1-0 sigur. Sigurmarkið kom úr vítaspyrnu sem dæmd var þegar Sergine Fall féll einhvern veginn ofan á Vuk Oskar Dimitrijevic og braut á honum innan teigs.

Simon Tibbling skoraði úr spyrnunni sitt fyrsta mark fyrir Fram eftir komuna frá Svíþjóð.

Vestri er áfram eitt þriggja efstu liða með 13 stig en Víkingur og Breiðablik spila í kvöld, gegn Stjörnunni og Val, á afar áhugaverðu kvöldi en 7. umferðin verður svo gerð upp í Stúkunni á Stöð 2 Sport, um kl. 21:25.


Tengdar fréttir

Upp­gjörið: Aftur­elding - KR 4-3 | Heima­sigur eftir tvöfalda endur­komu

Blásið var til veislu á Malbikstöðinni að Varmá í kvöld þegar Afturelding sigraði KR 4-3, eftir að hafa jafnað leikinn í tvígang og komið sér að lokum í forystu. Áhorfendametið féll og fengu áhorfendur nóg fyrir peninginn. KR að tapa sínum fyrsta leik í Bestu deildinni og Afturelding að jafna KR að stigum í deildinni.

Sigurður Breki á spítala eftir harkalegt samstuð

Sigurður Breki Kárason varð fyrir hörðu samstuði og fór upp á spítala, aðeins átta mínútum eftir að hann kom inn af varamannabekknum í leik KR gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum.

Uppgjörið: Fram - Vestri 1-0 | Frammarar stöðvuðu sigurgöngu Vestra

Fram bar sigurorð af Vestra með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við í sjöundu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í dag. Það var Simon Tibbling sem skoraði sigurmark Fram úr vítaspyrnu sem Vuk Oskar Dimitrijevic nældi í. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×