Innlent

Haraldur Jóhanns­son er látinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haraldur Jóhannsson er falinn frá.
Haraldur Jóhannsson er falinn frá.

Haraldur Jóhannsson, einnig þekktur sem Halli í Nesi, lést á líknardeildinni í Kópavogi 16. maí síðastliðinn, 71 árs að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum.

Haraldur var fæddur 8. apríl 1954 og ólst upp í Nesstofu við Seltjörn. Foreldrar hans voru Ólöf Gunnsteinsdóttir og Jóhann Ólafsson en þau voru síðustu ábúendur í Nesi.

Haraldur, sem var þekktur hjá sveitungum sem Halli í Nesi, gekk í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi og tók þátt í ungliðastarfi Gróttu og Björgunarsveitarinnar Alberts. Eftir grunnskóla dvaldi hann um tíma í Grimsby á Englandi þar sem hann var hjá móðursystur sinni og fór í enskunám. Síðar lagði hann stund á húsgagnasmíði og var á samningi hjá Trésmiðjunni Meið og lauk sveinsprófi frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja árið 1976.

Haraldur kvæntist æskuástinni sinni, Fjólu Guðrúnu Friðriksdóttur fyrsta vetrardag árið 1976. Sama ár stofnuðu þau heildverslunina Forval sem þau ráku saman allar götur síðan. Fyrstu árin fluttu þau inn leikföng og gjafavöru og fylgihluti og færðu sig svo yfir í hár- og snyrtivörur. Forval var umboðsaðili fyrir fjölda þekktra snyrtivörumerkja og ilmhúsa auk þess að framleiða sínar eigin hárvörur og var Haraldur oftast kenndur við fyrirtækið þeirra hjóna sem Halli í Forval. Árið 2013 seldu þau snyrtivöruhluta fyrirtækisins.

Samhliða rekstri Forvals kom Haraldur að mörgum fasteignatengdum þróunarverkefnum sem og að fjárfestingum í smærri fyrirtækjaverkefnum. Einnig sat hann í stjórn skíðadeildar KR um nokkurt skeið.

Árið 2017 stofnuðu Haraldur og Fjóla Spa of Iceland, íslenskt snyrtivöru- og lífstílsvörumerki sem hlotið hefur margar alþjóðlegar viðurkenningar. Það ráku þau saman allt til síðasta dags.

Börn Haraldar og Fjólu eru tvö; Guðrún Edda (1977) gift Viðari Þór Haukssyni og eiga þau Fjólu Guðrúnu og Benedikt Þór og Jóhann Friðrik (1979) giftur Bryndísi Haraldsdóttur og börn þeirra eru María Ólöf, Sara Mjöll og Haraldur.

Útför Haraldar verður frá Neskirkju við Hagatorg, 27. maí kl. 15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×