Erlent

Tveir ísraelskir sendiráðsstarfmenn skotnir til bana í Washington

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Lögreglumenn rannsaka morðvetnanginn fyrir utan Gyðingasafnið í Washington í nótt. 
Lögreglumenn rannsaka morðvetnanginn fyrir utan Gyðingasafnið í Washington í nótt.  AP Photo/Rod Lamkey, Jr.

Tveir starfsmenn ísraelska sendiráðsins í Washington höfuðborg Bandaríkjanna voru skotnir til bana í gærkvöldi fyrir utan Gyðingasafnið í borginni.

Breska ríkisútvarpið segir að um ungt par hafi verið að ræða og að þau hafi verið að koma af ráðstefnu í safninu sem gekk út á að ræða málefni íbúa Gasa svæðisins. Árásin átti sér stað um klukkan tvö í nótt að íslenskum tíma eða klukkan níu að kvöldi í Washington. 

Þau látnu hétu Yaron Lischinsky og Sarah Lynn Milgrim samkvæmt upplýsingum ísraelska sendiráðsins. 

Sá grunaði er í haldi lögreglu. Um er að ræða þrítugan Chicagobúa, Elias Rodriguez. Hann mun ekki hafa komið við sögu lögreglu áður og við handtökuna hrópaði hann slagorð til stuðnings Palestínu.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þegar tjáð sig um árásina og segir árásarmanninn augljóslega drifinn áfram af gyðingaandúð. Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, segir morðin sláandi og dæmi um villimannslegt gyðingahatur.

Rekja morðin til „undirróðurs“ gegn Ísrael

Ísraelskir ráðamenn hafa einnig fordæmt morðin. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, fullyrti að morðinginn hefði verið knúinn áfram af gyðingahatri.

„Við verðum nú vitni að hræðilegum kostnaði gyðingahaturs og æsilegs undirróðurs gegn Ísraelsríki. Blóðið eykst í blóðsökinni gegn Ísrael og það verður að berjast gegn henni fram í rauðan dauðann,“ sagði Netanjahú og vísaði til aldagamalla rasískra lygafregna um að gyðingar hefðu drepið frelsara kristinna manna til þess að nota blóðið úr honum í helgiathöfnum sínum.

Gideon Saar, utanríkisráðherra Ísraels, sagðist jafnframt hafa óttast að eitthvað af þessu tagi gæti gerst vegna „eitraðs, andgyðinglegs undirróðurs“ gegn Ísrael og gyðingum um allan heim frá árás Hamas-samtakanna á Ísrael 7. október 2023.

„Leiðtogar og embættismenn í mörgum löndum og alþjóðlegum samtökum stunda þennan undirróður líka, sérstaklega í Evrópu,“ sagði Saar.


Tengdar fréttir

Opni Ísraelar ekki fyrir mannúðaraðstoð „þá verða að vera þvinganir“

Utanríkisráðherra Íslands segir alþjóðasamfélagið þurfa að bregðast harðar við aðgerðum Ísrael ellegar horfa upp á þjóðernishreinsanir á Gasa. Takturinn sé að breytast hjá ríkjum Evrópu en meira þurfti til. Beita þurfi Ísrael þvingunum opni þeir ekki fyrir mannúðaraðstoð.

Dreifing hjálpargagna enn ekki hafin

Sameinuðu þjóðirnar segja að dreifing hjálpargagna sé enn ekki hafin.  Ísraelar segja að tæplega hundrað flutningabílar hafi komið inn á svæðið síðustu tvo dagana og að þeir hafi innihaldið matvæli, barnamat, lyf og lækningatæki.

Hætta viðræðum við Ísrael og boða aðgerðir

Ríkisstjórn Bretlands hefur tilkynnt að viðræðum við Ísraela um fríverslunarsamning yrði hætt. Er það vegna „grimmilegra“ aðgerða Ísraela á Gasaströndinni, þar sem neyðaraðstoð eins og matvælum, vatni og lyfjum hefur ekki verið hleypt inn í ellefu vikur. Sendiherra Ísrael í Bretlandi var einnig kallaður á teppið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×