Handbolti

Landsmeistari í sex­tánda sinn á ferlinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
 Katrine Lunde er enn að spila 45 ára gömul og bætir stöðugt við titlum í safnið.
 Katrine Lunde er enn að spila 45 ára gömul og bætir stöðugt við titlum í safnið. Getty/Alex Davidson

Sigursælasta handboltakona sögunnar bætti við titli í safnið í gærkvöldi þegar Odense Håndbold varð danskur meistari.

Norski markvörðurinn Katrine Lunde skipti yfir í Odense Håndbold á miðju tímabili þegar norska félagið Vipers Kristiansand fór á hausinn. Odense tryggði sér titilinn með 33-31 sigri á Team Esbjerg í gærkvöldi.

Katrine Lunde hafði orðið norskur meistari með Vipers undanfarin sjö ár.

Með því að vinna danska titilinn með Odense þá hefur hún orðið landsmeistari sextán sinnum á ferlinum.

Hún hafði unnið danska titilinn þrisvar áður en þá með Viborg HK.

Hún varð síðan fjórum sinnum ungverskur meistari með Győri ETO KC og einu sinni rússneskur meistari með Rostow am Don.

Hún vann þó ekki sinn fyrsta landstitil árið 2008 þegar hún var orðin 28 ára gömul. Vann þannig bara silfur og brons með Álaborgarliðinu sem hún spilaði með í þrjú ár áður en hún kom til Viborg. Frá því að sá fyrsti kom í hús þá hefur hún orðið landsmeistari á sextán af átján árum.

Katrine Lunde hefur líka unnið Meistaradeildina sjö sinnum á ferlinum og þá hefur hún unnið tuttugu verðlaun með norska landsliðinu á stórmótum (12 gull, 5 silfur og 3 brons).

Lunder 45 ára gömul og enn einn allra besti markvörður heims.

  • Landsmeistaratitlar Katrine Lunde:
  • 2008 - Danskur meistari með Viborg (1)
  • 2009 - Danskur meistari með Viborg (2)
  • 2010 - Danskur meistari með Viborg (3)
  • 2011 - Ungverskur meistari með Győri (4)
  • 2012 - Ungverskur meistari með Győri (5)
  • 2013 - Ungverskur meistari með Győri (6)
  • 2014 - Ungverskur meistari með Győri (7)
  • 2017 - Rússneskur meistari með Rostow am Don (8)
  • 2018 - Norskur meistari með Vipers (9)
  • 2019 - Norskur meistari með Vipers (10)
  • 2020 - Norskur meistari með Vipers (11)
  • 2021 - Norskur meistari með Vipers (12)
  • 2022 - Norskur meistari með Vipers (13)
  • 2023 - Norskur meistari með Vipers (14)
  • 2024 - Norskur meistari með Vipers (15)
  • 2025 - Danskur meistari með Odense (16)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×