Körfubolti

Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jalen Williams fagnar eftir að hafa troðið boltanum í körfuna í sigri Oklahoma City Thunder í nótt.
Jalen Williams fagnar eftir að hafa troðið boltanum í körfuna í sigri Oklahoma City Thunder í nótt. Getty/Matthew Stockman

Oklahoma City Thunder vann fimmta leikinn á móti Indiana Pacers í úrslitaeinvígi NBA deildarinnar í körfubolta í nótt. Liðið er því bara einum leik frá meistaratitlinum.

Staðan var jöfn eftir fjóra fyrstu leikina en Thunder menn unnu 120-109 á heimavelli sínum i nótt.

Maður leiksins var öðrum fremur Jalen Williams sem skoraði 40 stig en Shai Gilgeous-Alexander var með 31 stig og 10 stoðsendingar.

Williams setti persónulegt stigamet en hann hafði mest skorað áður 34 stig í leik í úrslitakeppninni.

Það er erfitt að eiga við Thunder liðið þegar þessir tveir eru að skila sjötíu stigum.

Klippa: Svipmyndir frá sigri Oklahoma City Thunder í leik fimm

„Þetta var alls ekki fullkominn leikur og nóg pláss fyrir bætingu. Það skipti samt okkur miklu máli að spila mun betur en í leik fjögur,“ sagði þjálfarinn Mark Daigneault.

Pascal Siakam var atkvæðamestur hjá Indiana Pacers með 29 stig og TJ McConnell bætti við 18 stigum. Liðinu tókst að minnka átján stiga forskot niður í tvö stig í fjórða leikhluta en komust ekki lengra.

Indiana fær næsta leik á heimavelli sínum og þá þarf Tyrese Haliburton að gera miklu meira. Hann meiddist í fyrsta leikhluta og hitti ekki úr skoti í öllum leiknum.

Það má sjá viðtal við Jalen Williams hér fyrir neðan, viðtal sem var tekið strax eftir leikinn. „Liðsfélagarnir sýna mér mikið traust og leyfa mér að vera ég“, sagði Williams meðal annars.

Klippa: Viðtal við Jalen Williams eftir sigur í leik fimm
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×