Atvinnulíf

Að leysa hratt og vel úr málum í stað þess að pirrast

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Stundum pirrumst við óþarflega við einhverju smávægilegu. Þá er gott að nota rökhugsunina á okkur sjálf til að ná úr okkur pirringnum. En stundum er full ástæða til að bregðast við og nota þá rökhugsunina til þess að bregðast rétt og faglega við; Þannig að allir geti vel við unað.
Stundum pirrumst við óþarflega við einhverju smávægilegu. Þá er gott að nota rökhugsunina á okkur sjálf til að ná úr okkur pirringnum. En stundum er full ástæða til að bregðast við og nota þá rökhugsunina til þess að bregðast rétt og faglega við; Þannig að allir geti vel við unað. Vísir/Getty

Það skiptir engu máli hvað vinnan okkar er frábær, viðskiptavinir dásamlegir, samstarfsfélagar geggjaðir og vinnustaðurinn sá allra besti; Við eigum öll okkar móment þar sem við getum stuðast yfir minnstu málum.

Já, pirrumst einfaldlega.

Stundum samt yfir einhverju smávægilegu. Til dæmis tölvupósti sem okkur finnst hálf dónalegur. Eða einhver skoðanaskipti eða tal á fundi sem fór alveg með okkur.

Djísus, hugsum við þá!

En stundum líka yfir einhverju sem réttilega þarf að leysa úr. Því oft geta mál undið upp á sig ef það er ekki strax reynt að skera á einhverja hnúta.

Eitt vinsælasta efni Harvard Business Review eru góð ráð fyrir alls konar í vinnunni. Þar á meðal að ná að leysa úr ágreining. Enda er hinn meinti ágreiningur oft ekki einu sinni stormur í vatnsglasi, heldur frekar eitthvað sem fyrir einhverra hluta sakir er að pirra okkur í dag.

En kíkjum á góðu ráðin. Sem til viðbótar við að anda vel ofan í maga eru eftirfarandi:

#1: Að setja sig í spor hins aðilans

Það sem er gott fyrir okkur að gera er að reyna að sjá hlutina út frá sjónarhorni hins aðilans; Þessum sem er ósammála okkur eða sendi okkur einhvern tölvupóst sem okkur þykir miður eða sýndi einhverja hegðun sem við tókum nærri okkur. Því um leið og við gerum það, virðist hugurinn strax fara í að leita lausna þar sem útgangspunkturinn er: Samvinna frekar en sundrung eða samskiptaleysi.

#2: Hvað er í raun og veru málið?

Þetta er frábær spurning. Því oft getum við stuðast út af einhverju eða mistúlkað, oftúlkað eða ofhugsað eitthvað sem er í raun ekkert persónulegt og snýst ekkert um okkur, heldur eitthvað allt allt annað. Að ná áttum og sjá betur um hvað málið snýst í raun, gerir okkur betri í því að ákveða skynsamlegri næstu skref.

#3: Markmiðið

Loks er það að átta okkur á því hvert markmiðið okkar er. Því ef við viljum leysa úr einhverjum málum getur það ekki verði ,,af því bara,“ einhver hlýtur tilgangurinn að vera. Viljum við ná meiri árangri í einhverju vinnutengdu? Eða snýst málið um að viðhalda góðu andrúmslofti í vinnunni? Að vera með skýrt markmið er nauðsynlegt til að halda einbeitingunni og fara ekki óvart að vaða úr einu í annað eða jafnvel að gera hlutina verri en áður.

#4: Niðurstaðan

Stundum leiða fyrstu fjögur atriðin okkur að þeirri niðurstöðu að það er langbest fyrir okkur að gera ekki neitt. Að mögulega voru þessar hugsanir okkar einfaldlega óþarfar, við að gera úlfalda úr mýflugu, eitthvað illa fyrirkölluð eða viðkvæm í dag.

En stundum leiða fyrstu fjögur atriðin okkur að þeirri niðurstöðu að best sé að leysa úr málunum hratt og vel og fagmannlega, þannig að okkur líði vel á eftir, við séum stolt af okkur sjálfum og örugg um að okkur tókst að leysa úr málum þannig að allir geti sátt við unað. Nú er bara að taka ákvörðun um næstu skref í takt við þessa niðurstöðu.


Tengdar fréttir

Mjög mikilvægt að eiga besta vin í vinnunni

„Það getur svo sem vel verið að einhverjir vinnuveitendur hugsi sem svo; Mér er skítsama hvort fólk eigi einhvern besta vin í vinnunni, ég vil bara að fólk sé að vinna!“ nefnir Tómas Bjarnason sviðstjóri stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafar Gallup sem dæmi um viðhorf vinnuveitanda sem telur það ekki sitt hlutverk að spá í hvort starfsfólk eigi sinn besta vin í vinnunni.

Lausnamiðuð ferilskrá og að þora

Til fjölda ára hafa rannsóknir sýnt að karlmenn eru líklegri til að láta vaða og sækja um störf, þótt þeir uppfylli ekki allar hæfniskröfur. Konur eru aftur á móti líklegar til að sækja ekki um störf nema þær uppfylli hvert einasta atriði sem listað er upp og helst rúmlega það.

Láttu rétta fólkið taka eftir þér í vinnunni

Við þekkjum öll orðatiltækið: Að láta verkin tala. Sem er reyndar nokkuð vinsælt orðatiltæki og rímar vel við þá sannfæringu fólks um að einbeita sér frekar að því að gera vel í vinnu en að láta taka eftir sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×