Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 27. júní 2025 17:08 Finnur Oddsson er forstjóri Haga. Vísir/Vilhelm Rekstur Haga hf. á fyrsta ársfjórðungi gekk vel og var í samræmi við áætlanir stjórnenda, en tekjur félagsins jukust um sjö prósent og námu 33,2 milljörðum króna. Félagið segir bætta afkomu einkum til komna vegna áhrifa af rekstri færeysku verslunarinnar SMS auk þess sem afkoma stærstu rekstrareininga styrkist milli ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu Haga til kauphallar en árshlutareikningur félagsins var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi í gær. Helstu fréttir af starfseminni eru þær að heimsóknum viðskiptavina í dagvöruverslanir á Íslandi hafi fjölgað um tæp 6 prósent. Seldum stykkjum hafi einnig fjölgað eða um tæpt eitt prósent. Fram kemur að seldum eldsneytislítrum hafi fækkað um 17 prósent á fyrsta ársfjórðungi. Aukin sala hafi verið í smásölu en samdráttur verið í heildarmagni, einkum vegna minni einskiptisviðskipta hjá erlendum stórnotendum. Þá segir félagið frá góðu gengi í þróun á stafrænum lausnum og þjónustum. Til að mynda hafi nýrri netverslun Banana verið hleypt af stokkunum í apríl. Jafnframt hafi aukin áhersla verið lögð á vöruval og þægindi fyrir fjölskyldur. Barnabónus hafi verið kynnt til sögunnar sem er stuðningur Bónus við ungar barnafjölskyldur á fyrstu mánuðum eftir fæðingu. Í samstarfi við Latabæ var stóru heilsuátaki ýtt úr vör sem miðar að því að auka neyslu barna á ferskum ávöxtum og grænmeti. „Rekstur Haga á rekstrarárinu 2025/26 fer vel af stað og staðfestir niðurstaða fyrsta fjórðungs sterka stöðu félagsins. Vörusala samstæðunnar nam 48,1 ma. kr. og jókst um 9,2 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. EBITDA nam 4.046 milljónum króna og hagnaður var 1.165 milljónir króna, sem er töluverð bæting á milli ára. Starfsemi gekk vel á öllum sviðum, bæði á Íslandi og í Færeyjum, en samanburður við árið á undan litast af innkomu SMS í samstæðu Haga og umtalsverðri lækkun olíuverðs á milli ára,“ er haft eftir Finni Oddssyni forstjóra Haga.
Hagar Uppgjör og ársreikningar Verslun Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira