Innlent

Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundar­rétti

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Búið er að reisa múmínkastalann í Kjarnaskógi.
Búið er að reisa múmínkastalann í Kjarnaskógi. Sýn

Eigendur höfundaréttar á Múmínálfunum segir að Múmínlundurinn sem verið er að reisa á í Kjarnaskógi á Akureyri sé klárt brot á höfundarrétti. Forstjóri Moomin Characters segir að forsvarsmenn skógarins hefðu átt að setja sig í samband við þá til að fá tilskilin leyfi.

Þetta segir Roleff Kråkström, forstjóri Moomin Characters, í skriflegu svari við fyrispurn fréttastofu.

Í vikunni var greint frá því að verið væri að reisa Múmínlund í Kjarnaskógi á Akureyri með öllu tilheyrandi. Mikill hugur væri í starfsfólki Skógræktarfélags Eyfirðinga því nú ætti að töfra fram ævintýraheiminn sem rammar inn sögur hinnar finnsku Tove Jansson um Múmínálfana.

Roleff segir að það sé ekki of seint fyrir skógræktarfélagið að sækja um tilskilin leyfi.

„Já, við teljum þetta alveg klárt höfundarréttarbrot. Þeir hefðu átt að hafa samband við okkur. Við hefðum með glöðu geði veitt aðstoð og hjálpað þeim að fá þau leyfi sem þarf. Það er ekki of seint fyrir skógræktarfélagið að hafa samband,“ segir Roleff.

Roleff segir að að Moomin Characters hafi enga hugmynd haft um áform skógræktarfélags Eyfirðinga áður en framkvæmdir hófust við lundinn.

Hann segir að byggingin sem skógræktarfélagið keypti, múmínkastalinn sjálfur, sé ekki höfundarréttarvarinn.

„Hann er framleiddur af Lappset sem hafa öll leyfi til að framleiða þetta. Allt hitt, hugmyndin, nafnið og markaðssetningin, það er gert í leyfisleysi,“ segir Roleff.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×