Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Árni Sæberg skrifar 30. júní 2025 15:42 Vilhjálmur vill ekki sjá Stefán í stjórn Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir hefur lagt ályktunartillögu fyrir hluthafafund Íslandsbanka, sem haldinn er í dag, um að fundurinn lýsi því yfir að hann telji stjórnarmanninn Stefán Sigurðsson með öllu óhæfan til að gæta hagsmuna hluthafa. Ástæðan er tölvubréf sem Stefán sendi fyrir hrun.
Klukkan 16 í dag hefst fyrsti hluthafafundur Íslandsbanka eftir að ríkið seldi allan hlut sinn í bankanum. Hluthafafundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum bankans að Hagasmára í Kópavogi. Þó að höfuðstöðvar bankans séu rúmgóðar verður að teljast harla ólíklegt að allir ríflega þrjátíu þúsund hluthafar bankans geti mætt á fundinn í eigin persónu. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram rafrænt, óháð því hvort hluthafar mæti á fundarstað eða taki þátt rafrænt, sagði í tilkynningu um fundinn þegar boðað var til hans. Fundurinn fer fram á íslensku, en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku. Í tilkynningunni er enn fremur tekið fram að öllum hluthöfum sé heimilt að sækja hluthafafund, taka þar til máls og neyta atkvæðisréttar síns. Kaupaukakerfi rætt Á fundinum verður aðalumræðuefnið tillaga stjórnar að breytingum á starfskjarastefnu bankans. Stjórn bankans leggur til að við starfskjarastefnu bankans bætist tvö heimildarákvæði við stefnuna, sem stjórn geti nýtt kjósi hún svo. Annars vegar verði stjórn heimilt að setja á fót sérstakt kaupaukakerfi fyrir starfsfólk og hins vegar verði stjórn heimilt að innleiða kaupréttaráætlun á grundvelli laga um tekjuskatt. „Markmiðið með umræddum heimildarákvæðum er að veita stjórn svigrúm til þess að umbuna starfsfólki fyrir árangur í starfi og tengja saman langtímahagsmuni starfsfólks og bankans,“ segir í fundargögnum. Önnur mál og tillaga Vilhjálms Annað er ekki á dagskrá nema umræða um önnur mál. Þar er þegar komið eitt annað mál á dagskrá. Það er ályktunartillaga um vantraust á hendur stjórnarmanni frá Vilhjálmi Bjarnasyni, einum þekktasta fjárfesti landsins. „Hluthafafundur í Íslandsbanka hf. haldin þann 30. júní 2025 telur stjórnarmanninn Stefán Sigurðsson með öllu óhæfan til að gæta hagsmuna hluthafa. Framganga hans við að niðurlægja og lítilsvirða hluthafa á aðalfundi í Glitni hf. vorið 2008 bendir eindregið til að störf í stjórn hlutafélags í eigu almennings og lífeyrissjóða hentar umræddum stjórnarmanni alls ekki. Hluthafafundur í Íslandsbanka hf. krefst þess að ferill stjórnarmanna í félaginu sé hafinn yfir allan vafa hvað heilindi varðar,“ segir í tillögu Vilhjálms. Vísar í rannsóknarskýrsluna Í fundargögnum segir að neðangreind úrklippa úr skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sé birt með tillögunni til skýringar, að beiðni Vilhjálms: „Titringur virðist hafa verið innan Glitnis fyrir aðalfund bankans 20. febrúar 2008, en þar ætlaði Vilhjálmur Bjarnason að gera athugasemdir við starfslokasamning sem gerður var við Bjarna Ármannsson 2007. Einkum hugðist hann gagnrýna kaup bankans á hlutabréfum í Glitni af Bjarna. Starfsmaður Glitnis skrifar í tölvubréfi: „Hugmyndin er að leggja fram yfirlýsingu á fundinum á morgun sem svarar spurningum Vilhjálms Bjarnasonar. Þetta mun gera Vilhjálmi erfiðara fyrir að stela senunni á fundinum og koma aðalatriðum málsins til fjölmiðla.“ Í öðru tölvubréfi frá sama starfsmanni sama dag segir: „Ég held að við ættum ekki að gefa Vilhjálmi of mikinn tíma á fundinum til þess að undirbúa svör við svarinu. Þannig að mínu mati ætti þetta ekki að koma við upphaf fundarins.“ Tölvubréf frá Stefáni Sigurðssyni til nokkurra stjórnenda og starfsmanna Glitnis 20. febrúar 2008 RNA 8. Bindi bls. 221“
Salan á Íslandsbanka Hrunið Íslandsbanki Fjármálafyrirtæki Mest lesið Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Atvinnulíf Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Sjá meira