Erlent

Ellefu dagar milli nýrra jarð­ganga í Fær­eyjum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Glæsilegur gangamunni nýju jarðganganna í Þórshöfn.
Glæsilegur gangamunni nýju jarðganganna í Þórshöfn. Articon

Færeyingar fögnuðu í gær enn einum jarðgöngunum, aðeins ellefu dögum eftir síðustu jarðgangavígslu. Nýjustu göngin eru jafnframt fyrstu innanbæjargöngin í Þórshöfn.

Í fréttum Sýnar mátti sjá myndir Kringvarps Færeyja frá opnun nýrra jarðganga á Suðurey, Fámjinsganga, í lok júnímánaðar. Þeim var fagnað með lúðrablæstri, ræðuhöldum ráðamanna og kaffisamsæti.

Rétt eins og á Íslandi er vígsla nýrra ganga í Færeyjum mikill gleðidagur fyrir viðkomandi samfélög. Við opnun Fámjinsganga notaði samgönguráðherrann ekki skæri heldur grindhvalahníf til skera á borðann að færeyskum hætti.

Elsti íbúi þorpsins ók fyrsta bílnum í gegnum Fámjinsgöngin þann 26. júní við fögnuð viðstaddra.Landsverk

Þarna var verið að opna 1.200 metra löng göng sem leysa af 400 metra háan fjallveg til þorpsins Fámjins en þar búa um áttatíu manns. Elsti íbúi Fámjin, Svend Joensen, fékk svo fyrstur að aka í gegn. Og þarna verður enginn rukkaður um veggjöld.

Frá vígsluathöfn nýju jarðganganna í Þórshöfn í gær.Articon

En ekki voru liðnir nema ellefu dagar frá því Fámjinsgöngin voru opnuð að færeyskir ráðamenn voru aftur mættir með grindhvalahníf að skera á næsta borða. Í gær var nefnilega verið að opna Húsareynsgöngin, sem liggja í útjaðri Þórshafnar.

Kollfirðingurin Bergur Robert Dam Jensen, formaður framkvæmdaráðs Þórshafnar, skar á borðann í Húsareynsgöngunum í gær. Elsa Berg, borgarstjóri Þórshafnar, til vinstri, og Jóhan Christiansen, samgönguráðherra Færeyja, til hægri.Articon

Þau eru 1.800 metra löng, teljast vera fyrstu innanbæjargöng í Færeyjum og eru hluti af nýrri sex kílómetra langri aðkomuleið inn í höfuðstaðinn úr norðri. Norðanmegin opnast nýju göngin skammt frá munna Austureyjarganganna, sem tekin voru í notkun fyrir jólin 2020, en þau hafa reynst bylting fyrir samgöngukerfi eyjanna.

Kátir Færeyingar ganga inn í nýju göngin.Articon

Að vígsluathöfn lokinni var viðstöddum boðið til veislu í nýju Þjóðarhöll Færeyinga, Við Tjarnir, sem er skammt frá öðrum gangamunnanum.

Nýju jarðgöngin eru hluti af nýrri sex kílómetra langri aðkomuleið inn í Þórshöfn úr norðri.Articon

Færeyski verktakinn Articon annaðist verkið. Kostnaður var áætlaður um 6,6 milljarðar íslenskra króna. Þórshafnarbær greiðir tvo þriðju en landsjóður Færeyja þriðjung.

Mannfjöldi hlýðir á ræðu borgarstjóra Þórshafnar, Elsu Berg.Articon

Enginn vegtollur verður heldur innheimtur í þessum göngum, frekar en öðrum jarðgöngum Færeyinga á landi. Þar er eingöngu rukkað í neðansjávargöng milli eyja.

Gamli-Ford var fyrsti bíllinn sem ók í gegnum þessi 1,8 kílómetra löngu göng.Articon


Tengdar fréttir

Færeyingar fagna enn einum jarðgöngunum

Færeyingar fögnuðu í gær opnun nýrra jarðganga, Fámjinsganga á Suðurey. Jóhan Christiansen, sjávarútvegs- og samgönguráðherra, opnaði göngin formlega með því að skera á borða. Elsti íbúi Fámjin, Svend Joensen, fékk svo fyrstur að aka í gegn.

Anna­samt verk­efni að flytja jarð­ganga­f­réttir í Fær­eyjum

Sá sem skrifar fréttir af gangi jarðgangaverkefna í Færeyjum í vef Landsverks, vegagerðar þeirra Færeyinga, hefur sannarlega frá nógu að segja þessa dagana. Svo mikil er atorkan hjá frændþjóð Íslendinga í að bæta samgöngukerfi sitt með fleiri jarðgöngum.

Færeyingar byrjuðu á enn einum jarðgöngum í dag

Færeyingar hófu í dag að grafa enn ein jarðgöngin, að þessu sinni tveggja kílómetra innanbæjargöng í jaðri Þórshafnar. Þetta þýðir að samtímis er núna verið að grafa sex jarðgöng í Færeyjum, til viðbótar við tvenn sem frændur okkar hafa nýlokið við.

Jarðgöngin koma í röðum, þau næstu fyrir áttatíu íbúa

Ekkert lát ætlar að verða á jarðgangaborunum Færeyinga. Fyrir tveimur vikum fögnuðu þeir fyrstu sprengingu nýrra Árnafjarðarganga. Samtímis er hafið útboðsferli á göngum til Fámjins, áttatíu manna byggðar á Suðurey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×