Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 7. júlí 2025 21:26 Hörður Ægisson ritstjóri Innherja segir Samkeppniseftirlitið með samruna Kviku og Arion banka í höndunum. Vísir Stjórn Kviku banka samþykkti í gær að verða við beiðni Arion banka um að hefja samrunaviðræður milli bankanna. Ritstjóri Innherja segir helst velta á Samkeppniseftirlitinu hvort af samrunanum verði.
Kvika banki greindi frá viðræðunum í kauphallartilkynningu í gærkvöldi. Arion banki og Íslandsbanki óskuðu báðir eftir samrunaviðræðum við Kviku banka í maí, og fór það svo að Kvika hafnaði báðum tilboðunum og sagði hvorugt nógu gott. Arion og Íslandsbanki ítrekuðu svo báðir ósk sína um að sameinast bankanum, og virðist Arion hafa boðið betur. Hörður Ægisson ritstjóri Innherja greindi stöðuna í kvöldfréttum. Eins og fram hefur komið hækkaði Arion banki tilboð sitt um tuttugu prósent frá því í maímánuði, en ekki liggur fyrir hve mikið Íslandsbanki, sem bauð tíu prósent ofan á markaðsvirði hlutabréfa Kviku í maí, hækkaði sitt tilboð. „En ég held að það hafi munað frekar litlu í tilboðum bankanna,“ segir Hörður. Hann telur margt benda til þess að viðræðurnar komi til með að bera árangur. „Það má til að mynda bera saman að þegar Kvika banki fór í samrunaviðræður við Íslandsbanka 2023, þær stóðu yfir í hartnær sex mánuði þegar þeim var slitið. Og á þeim tímapunkti hafði ekki náðst samkomulag milli bankanna um skiptihlutföll. Núna eru Arion banki og Kvika að fara af stað, og eru búin að ná samkomulagi um þessi lykilatriði,“ segir Hörður. „Þannig að stóra óvissan, eins og sagan segir okkur með alla risastóra fyrirtækjasamruna á Íslandi, og þetta er líklega stærsti samruni sem komið hefur á borð Samkeppniseftirlitsins í áraraðir, er hvaða augum Samkeppniseftirlitið mun líta á þennan samruna.“ Hörður segir líklegt að stjórnendur bankanna hafi undanfarnar vikur hlerað Samkeppniseftirlitið óformlega um hvaða augum þeir líti á málið. „Núna held ég að stjórnendur Arion banka og Kviku banka og ráðgjafar þeirra muni um leið og þeir geta, fara í einhvers konar forviðræður við Samkeppniseftirlitið til að sjá hvað þurfi að gera til að koma þessu í gegn, ef eitthvað.“ Hörður segir aðspurður of djúpt í árinni tekið að segja að ef að samrunanum yrði væri komin risabanki á markað með þeim afleiðingum að samkeppnisumhverfið yrði erfitt. Hann bendir á að markaðsvirði sameinaðs banka miðað við gengið í dag séu um 330 milljarðar króna. Sameinaður banki yrði að óbreyttu ögn minni en til að mynda Landsbankinn sé litið til eigin fjár og heildareigna. „Við erum með Íslandsbanka sem er risastór banki, við erum með fullt af öðrum leikendum á þessum markaði eins og Skaga, sem er fjármálastofnun, og svo önnur minni verðbréfafyrirtæki. Og þá eru lífeyrissjóðirnir mjög umsvifamiklir á lánamarkaði ásamt öðrum minni leikendum.“ Eru það góðar fréttir fyrir neytendur ef þessi samruni verður? „Þessi samruni gerist ekki í tómarúmi. Stóru bankarnir hafa allir áhyggjur af því að kostnaður er að aukast mjög mikið. Þeir búa við mjög háa sérstaka skatta og mjög þungt regluverk sem er að fara að þyngjast ennþá meira. Það leiðir til þess að það verður áskorun fyrir bankana að skila, að þeirra mati, viðunandi arðsemi. Og bankar sem skila ekki nægilega góðri arðsemi til hluthafa sinna, eru ólíklega að fara að bæta kjör neytenda, einstaklinga eða fyrirtækja. Þannig að við skulum vonast til þess að sú mikla samlegð sem ég held að kunni að fást með samrunanum, muni meðal annars renna í formi bættra kjara til einstaklinga og fyrirtækja.“
Kvika banki Arion banki Íslandsbanki Fjármálafyrirtæki Kaup og sala fyrirtækja Samkeppnismál Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira