Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Agnar Már Másson skrifar 15. júlí 2025 22:49 Þyrlan á vettvangi við Hestskarðshnjúk. Aðsend Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að Hestskarðshnjúki á Norðurlandi síðdegis í kvöld til að aðstoða göngumann sem hafði komið sér í sjálfheldu. Maðurinn slapp ómeiddur.
Tveir göngumenn voru á ferð um Hestskarðshnjúk milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar þegar þeir ákváðu að fara hvor sína leið niður, útskýrir Magnús magnússon formaður björgunarsveitarinnar Stráka í samtali við fréttastofu. Annar þeirra mun aftur á móti hafa lent í vandræðum á leiðinni niður og sat fastur í sjálfheldu á syllu í fjallinu. Þar sem ekki var hægt að síga niður að þeim stað sem göngugarpurinn hafði komið sér í var þyrla var kölluð til aðstoðar. „Það var ekkert hægt að tryggja sig í fjalllendinu til að koma niður til hans,“ segir Magnús hjá björgunarsveitinni. Lögreglan hafi verið í símasambandi við hann nær allan þann tíma sem björgunaraðgerðin stóð yfir. Göngumaðurinn hafi verið fluttur með þyrlu upp á skíðasvæði í nágrenninu þar sem björgunaraðilar og aðstandendur biðu hans. Ekkert virtist ama að göngumanninum þegar hann kom niður, segir Magnús. Hátt í tuttugu björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni og var dróni nýttur til að kanna svæðið.Aðsend Björgunarmenn ganga að vettvangi. Þyrlan tók á loft frá Reykjavík klukkan 19 í kvöld.Aðsend Hestskarðshnjúkur er í Fjallabyggð.map.is
Fjallabyggð Landhelgisgæslan Mest lesið Hófu frumkvæðisathugun í kjölfar umfjöllunar Kveiks Innlent Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Innlent Hundur fékk tafarlausa þjónustu en krabbameinssjúk kona beið mánuðum saman Innlent Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur Innlent Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Nýbakaðar mæður í felum því þær viti hvernig kerfið virkar Innlent Lést í sprengingunni Innlent Rannsaka meint brot gegn barni í leikskóla á Álftanesi Innlent „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Erlent Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Innlent Fleiri fréttir Nýbakaðar mæður í felum því þær viti hvernig kerfið virkar Hófu frumkvæðisathugun í kjölfar umfjöllunar Kveiks Fækkun aðgerða áfall fyrir marga endósjúklinga Tekist á um kjarasamningana Rannsaka meint brot gegn barni í leikskóla á Álftanesi Hundur fékk tafarlausa þjónustu en krabbameinssjúk kona beið mánuðum saman Hnífstunguárás í miðbænum, endómetríósa og hótanir Trumps Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Nýsköpun, kjarasamningar og afnám áminningarskyldu Fáskrúðsfjarðargöngin opin á ný Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Handtekinn vegna stunguárásar í miðbænum Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Veittu ferðamönnum í vanda aðstoð við Héðinsfjarðargöng Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Slysið í Fóðurblöndunni, möguleg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu og enn meira óveður Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Sjá meira