Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. júlí 2025 20:06 Ásgeir segist fyrst og fremst vilja fá að njóta ævikvöldsins í friði. Íbúar í Árskógum í Breiðholti festa ekki svefn vegna áhyggna af framkvæmdum á nýjum skjólvegg og göngustíg beint fyrir framan hús þeirra. Hús í sömu götu hefur verið í fréttum vegna græna gímaldsins svokallaða.
Framkvæmdirnar hófust í síðustu viku en auk göngustígsins stendur til að setja upp steyptan vegg í eins og hálfs metra hæð við enda göngustígarins. Ásgeir Gunnarsson, eftirlaunaþegi og íbúi sem býr á fyrstu hæð að Árskógum 5-7, mun fá vegginn beint fyrir framan sína íbúð og segist ekki hafa getað sofið vegna áhyggja af framkvæmdunum. „Þeir ætla að drekkja okkur hérna í steinsteypu. Steinsteyptur veggur hérna við hliðina á okkur, mér hérna á hægri hönd. Hann verður líklega í svipaðri hæð og þetta hérna,“ segir Ásgeir. „Síðan þetta gerðist, það er nú komin vika síðan þetta gerðist fyrst, höfum við sofið lítið og við erum lurkum lamin. Þetta reynir á gamalt fólk. Við erum komin hingað til að hvíla okkur í restina á þessu lífi en það er greinilegt að það er ekki tekið tillit til þess.“ Mótmæltu framkvæmdunum um helgina Íbúar mótmæltu framkvæmdunum um helgina og kvarta yfir samráðsleysi af hálfu Reykjavíkurborgar. „Við stoppuðum vinnu hérna. En Reykjavíkurborg vill ekki tala við okkur. Ég skil ekki hvað er á ferðinni hérna, ég segi bara alveg eins og er, að þurfa að eyðileggja heila íbúð. Þeir eyðileggja okkar íbúð og stórskemma þessa því þar eru settir ljósastaurar fyrir framan.“ Hann óttast að íbúð sín og eiginkonu sinnar muni hríðfalla í verði. Hann hafi fengið þær upplýsingar að stígurinn hafi verið á deiluskipulagi frá 2009. Í þarnæsta húsi hafa íbúar átt í erjum við borgaryfirvöld vegna græna gímaldsins svokallaða, gríðarstórrar vöruskemmu sem hefur verð reist við Álfabakka 2 í nokkurra metra fjarlgæð frá fjölbýlishúsi í götunni. „Þegar þetta gímald kom þarna, þið sjáið það þarna. Þegar það kom þá var ekkert vandamál að byggja það yfir endann á þessum stíg. Þá var hann ekkert heilagur. En það er eins og hann sé heilagur núna. Það er einn hérna sem þóttist þekkja þetta, hann sagði, þetta eru tíu til fimmtán milljónir, að minnsta kosti,“ segir Ásgeir. „Ég vil helst fá að vera í friði og helst fá að geta sofið hér í rólegheitum og eins og ég segi, notið síðustu dagana hér á þessu jarðríki, en það er víst alveg útilokað.“
Reykjavík Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira