Íslenski boltinn

Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður á­fram

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Kristján Guðmundsson lætur af störfum á miðju tímabili annað tímabilið í röð. Hann hætti hjá Stjörnunni í fyrra og hefur núna sagt skilið við Val. 
Kristján Guðmundsson lætur af störfum á miðju tímabili annað tímabilið í röð. Hann hætti hjá Stjörnunni í fyrra og hefur núna sagt skilið við Val.  Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Kristján Guðmundsson er hættur sem aðalþjálfari kvennaliðs Vals í Bestu deildinni en meðþjálfari hans, Matthías Guðmundsson, verður áfram.

Kristján óskaði sjálfur eftir því við stjórn Vals að stíga til hliðar en að öðru leiti verður sama þjálfarateymi enn við störf, nú leitt eingöngu af Matthíasi Guðmundssyni.

Árangur Vals hefur verið langt undir væntingum á tímabilinu, liðið situr um miðja deild í fimmta sætinu og er þrettán stigum frá toppnum, ásamt því að hafa dottið út í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn FH í vikunni.

„Það er frábært fólk í Val og hér er gott að vera en árangurinn hefur ekki verið eins og ég hefði viljað og á því er ég fyrst og fremst að axla ábyrgð með þessari ákvörðun. Ég óska öllum í Val hins besta og þakka fyrir mig,“ segir Kristján Guðmundsson í tilkynningu Vals.

Matthías Guðmundsson verður nú einn aðalþjálfari Vals. vísir / jón gautur

Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir stjórnina treysta Matthíasi og hans teymi til að stýra liðinu í komandi verkefnum.

„Það býr klárlega meira í Valsliðinu eins og við höfum sýnt með úrslitum í einhverjum leikjum í sumar. Það hefur hinsvegar líka vantað upp á frammistöður eins og staðan í töflunni sýnir. Framundan eru hörku leikir hjá okkur m.a. gegn Breiðablik í næsta leik og svo er það evrópukeppnin. Við treystum Matta og teyminu til þess að stýra liðinu áfram“ segir Björn Steinar.


Tengdar fréttir

Kristján stígur til hliðar hjá Stjörnunni

Kristján Guðmundsson hefur óskað eftir því að stíga til hliðar sem þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í fótbolta og tekur Jóhannes Karl Sigursteinsson við sem þjálfari liðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjörnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×