Erlent

Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins

Agnar Már Másson skrifar
Bill Clinton fyrrverandi forseti Bandaríkjanna.
Bill Clinton fyrrverandi forseti Bandaríkjanna. Getty

Bandarísk þingnefnd hefur birt Clinton-hjónunum stefnu þar sem þau eru krafin um skýrslu í tengslum við Epstein-málið. Fjöldi fyrrverandi ráðamanna sem spannar fjórar forsetatíðir er einnig krafinn svara vegna málsins.

Eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings gaf í dag út stefnu á hendur fjölda fyrrverandi ráðamanna, að því er CBC greinir frá.

Meðal þeirra stefndu eru Bill Clinton, fyrrverandi forseti, og eiginkona hans Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra og forsetaframbjóðandi. Þeim er gert að bera vitni um mál sem tengist kynferðisafbrotamanninum Jeffrey Epstein.

Bill Clinton hefur margoft verið orðaður við Epstein og er til fjöldi mynda af tvímenningunum saman.

Í stefnunum er þess krafist að skýrslur verði teknar af fyrrverandi starfsmönnum dómsmálaráðuneytisins.

Þingmenn í undirnefnd eftirlitsnefndarinnar samþykktu í síðasta mánuði að óska eftir frekari gögnum frá dómsmálaráðuneytinu í tengslum við málið.

Nefndin gaf einnig út stefnu á hendur Pam Bondi dómsmálaráðherra um skjöl sem tengjast rannsókn dómsmálaráðuneytisins á Epstein og Ghislaine Maxwell, samverkakonu hans sem afplánar nú 20 ára fangelsisdóm.

Nefndin vill einnig fá vitnisburði frá Clinton-hjónunum og fleiri embættismönnum sem spanna síðustu fjórar forsetatíðir; þar á meðal eru fyrrverandi dómsmálaráðherrarnir, Bill Barr, Alberto Gonzales, Jeff Sessions, Loretta Lynch og Eric Holder en einnig fyrrverandi forstjórar alríkislögreglunnar, James Comey og Robert Mueller.

Sessions og Barr stýrðu dómsmálaráðuneytinu á fyrsta kjörtímabili Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Þingmennirnir leita upplýsinga frá Clinton-hjónunum vegna fyrri tengsla fyrrverandi forsetans við Epstein og Maxwell í upphafi aldarinnar.

Bréfin sem James Comer, repúblikani og formaður eftirlitsnefndarinnar, sendi hinum stefndu eru öll svipuð að sögn CBC. Skjöl úr dómsmálaráðuneytinu verða að vera afhent fyrir 19. ágúst samkvæmt stefnunni og skýrslutökur eru áætlaðar í ágúst, september og október.

Maxwell, fyrrverandi kærasta og aðstoðarkona Epsteins, hefur verið flutt í lágmarksöryggisfangelsi í Texas sem þykir nokkuð þægilegra en fangelsið sem hún hefur verið í í Flórída. Ekki liggur fyrir af hverju hún var flutt.


Tengdar fréttir

„Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara

Sérstakur rannsakandi sem skipaður var af dómsmálaráðherra Donalds Trump, með það verkefni að kafa í Rússarannsóknina svokölluðu, fann vísbendingar sem grafa undan þeirri kenningu margra stuðningsmanna Trumps að Hillary Clinton og starfsfólk hennar hafi reynt að koma sök á Trump og ljúga því að framboð hans hafi átt í samstarfi við Rússa í kosningabaráttunni 2016.

Maxwell vill friðhelgi fyrir vitnisburðinn

Eftirlitsnefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins hefur hafnað umleitan Ghislaine Maxwell um að hún fái friðhelgi gegn því að bera vitni fyrir nefndinni.

Trump um Epstein: „Hann stal fólki sem vann fyrir mig“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist í gær hafa slitið vinskap sínum við Jeffrey Epstein, hin látna barnaníðing, fyrir mörgum árum. Forsetinn sagðist hafa gert það eftir að Epstein sveik hann með því að ráða starfsfólk Trumps til sín tvisvar sinnum.

„Hann stal henni“

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Jeffrey Epstein hafa „stolið“ Virginiu Giuffre úr starfi hennar í heilsulind sveitaklúbbs Trump í Mar-a-Lago í Flórída. Trump segist hafa slitið sambandi sínu við Epstein sökum þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×