Almar var kominn alla leið til Bandaríkjanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. ágúst 2025 20:11 Almar Orri Atlason hefur verið lykilmaður í íslensku unglingalandsliðunum. FIBA.Basketball Almar Orri Atlason verður með íslenska karlalandsliðinu í körfubolta á Evrópumótinu í Póllandi en það þýddi jafnframt langt ferðalag hjá stráknum. Hann var farinn út í nám í Bandaríkjunum þegar neyðarkallið barst frá Íslandi.
Almar Orri var ekki valinn í EM-hópinn sem var tilkynntur í gær en hlutirnir geta verið fljótir að breytast í boltanum. Meiðsli Hauks Helga Pálssonar þýða að Almar var kallaður inn í hópinn aðeins einum degi síðar. Hann er því á leiðinni á Eurobasket eftir allt saman. Almar Orri er uppalinn í KR en spilar með Bradley skólanum í bandaríska háskólaboltanum. Eftir að það kom í ljós að hann yrði ekki í íslenska EM-hópnum þá var hann farinn út til Bandaríkjanna þar sem skólanámið kallaði. Það þurfti því að hafa snögg handtök og redda stráknum fari aftur til Íslands. Íslenska liðið er síðan á leiðinni til Litáen þar sem liðið spilar æfingaleik við heimamenn á föstudagskvöldið. Almar er því að fljúga heim til Íslands í kvöld og nótt. Flýgur frá Chicago og lendir í fyrramálið. Hann flýgur síðan með íslenska liðoinu til Litáen eftir hádegi. Strákurinn verður því á ferðinni í næstum því heilan sólarhring. Almar Orri, sem er einn efnilegasti leikmaður Íslands, hafði spilað undirbúningsleikina hjá íslenska liðinu en tókst ekki að vinna sér sæti í liðinu. Hann stóð sig þó það vel að hann var fyrsti varamaður og það þýddi sæti í liðinu þegar Haukur meiddist. Almar er yngsti leikmaður íslenska liðsins og eins og Martin Hermannsson árið 2015 og Tryggvi Snær Hlinason árið 2017 þá hafa efnilegir leikmenn komist í fyrri EM-hópa íslenska körfuboltalandsliðsins.
Landslið karla í körfubolta EM 2025 í körfubolta Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Fótbolti Fleiri fréttir Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Sjá meira