Erlent

Al­þjóða­kerfinu ekki við­bjargandi og þörf á að­lögun

Samúel Karl Ólason skrifar
Í drögum að nýrri skýrslu fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi grafið mjög undan alþjóðlegum stofnunum og samþykktum. Ólíklegt sé að heimurinn muni færast í sama horf aftur.
Í drögum að nýrri skýrslu fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi grafið mjög undan alþjóðlegum stofnunum og samþykktum. Ólíklegt sé að heimurinn muni færast í sama horf aftur. AP

Ómögulegt er að bjarga núverandi skipan alþjóðamála og ríki Evrópu þurfa að aðlaga sig aftur að lögmáli frumskógarins eða vinna að því að skapa nýtt alþjóðakerfi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í drögum að nýrri skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem til stendur að birta á morgun.

Skýrslan á að fjalla um helstu áskoranir sambandsins á næstu árum en í drögum hennar segir að alþjóðlegar stofnanir eins og stofnanir innan Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðaviðskiptastofnunin, svo eitthvað sé nefnt, muni ekki koma óskaddaðar frá næstu árum og mögulega sé þeim ekki viðbjargandi.

Það sé að miklu leyti vegna Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, sem hafi slitið Bandaríkin frá nokkrum slíkum stofnunum og dregið úr fjárveitingum til þeirra. Þá hafi tollar Trumps einnig grafið verulega undan því alþjóðakerfi sem þekkst hefur undanfarna áratugi.

Þetta kemur fram í grein Politico en blaðamenn miðilsins hafa komið höndum yfir drög að skýrslunni. Í greininni segir að lokaskýrslan gæti veri töluvert öðruvísi en drögin.

Megi ekki óttast ný bandalög

Í drögunum segir að breytingarnar gætu haft mikil áhrif á ESB þar sem mörg af kerfum sambandsins byggi á alþjóðakerfinu og viðskiptaháttum undanfarinna ára.

„Óstöðugleiki og truflanir á alþjóðakerfinu í samblandi við brestum í hagkerfum heims hafa neikvæð áhrif á getu ESB til að vinna í hag efnahags og íbúa sambandsins,“ segir í drögunum.

Sjá einnig: Ís­land enn friðsælast í sí­fellt versnandi heimi

Í drögum skýrslunnar segir að Evrópa þurfi að aðlagast og leiðtogar heimsálfunnar megi ekki vera hræddir við að gera ný bandalög í samræmi við sameiginlega hagsmuni. Þá þurfi gæti Evrópa jafnvel tekið leiðandi hlutverk í að skapa nýtt alþjóðakerfi.

Sérstaka áherslu ætti að leggja á stofnanir eins og Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðaviðskiptastofnunina.

Ríki Evrópu þurfa einnig, samkvæmt drögunum, að vera undirbúin fyrir tækninýjungar eins og gervigreind og námuvinnslu í geimnum og á hafsbotni. Umræða um reglugerðir fyrir slíkar nýjungar þurfi að eiga sér stað.


Tengdar fréttir

Sér ekki tilgang í öryggistryggingum þar sem Rússum sé treystandi

Verði hermenn frá Vesturlöndum sendir til Úkraínu, eftir að friður næst en sérstaklega ef þeir mæta áður en búið er að semja um frið, yrðu þeir lögmæt skotmörk rússneska hersins. Þar að auki yrðu öryggistryggingar handa Úkraínumönnum óþarfar, því Rússum væri treystandi.

Drekinn beraði vígtennurnar

Kínverjar héldu í morgun stærðarinnar hersýningu í Peking þar sem nýjustu hergögn ríkisins voru opinberuð og mörg þeirra í fyrsta sinn. Þar sýndu ráðamenn í Kína aukinn hernaðarmátt ríkisins.

Felldu ellefu í árás á bát meintra smyglara frá Venesúela

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær að hann hefði skipað bandaríska hernum að granda hraðbát í sunnanverðu Karíbahafi sem bar fíkniefni. Ellefu menn eru sagðir hafa verið um borð í bátnum á vegum fíkniefnasamtakanna Tren de Arague, frá Venesúela.

Hleypa fulltrúum Palestínu ekki á allsherjarþingið

Bandaríkjamenn hafa hafnað og afturkallað vegabréfsáritanir sendinefndar palestínsku heimastjórnarinnar en hún, með Mahmoud Abbas forseta í fararbroddi, ætlaði að sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í september.

Flestir tollar Trumps eru ólöglegir, í bili

Bandarískur áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað flesta af tollum Donalds Trump, forseta, ólöglega. Sjö dómarar dómstólsins, af ellefu, segja Trump hafa farið út fyrir valdsvið sitt þegar hann beitti fjölmörg ríki heims tollum á grunni meints neyðarástands. Tollarnir gilda þó enn, þangað til í október, vegna áfrýjunar dómsmálaráðuneytisins til Hæstaréttar Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×