Coote ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. september 2025 13:31 David Coote hefur brotið ýmis lög undanfarin ár. Rob Newell - CameraSport via Getty Images Fyrrum dómarinn David Coote, sem saug kókaín og lét gamminn geysa um Jurgen Klopp, hefur verið ákærður fyrir að framleiða barnaníðsefni.
Coote er ákærður fyrir að hafa þann 2. janúar árið 2020 framleitt barnaklám í flokki A, sem er alvarlegasti flokkur slíkrar ákæru og sýnir yfirleitt fullorðinn einstakling misnota barn. Hann var handtekinn og ákærður fyrir mánuði en mætir í dómsal í fyrsta sinn á morgun, eins og breska lögreglan staðfesti við Nottingham Post. Coote var vikið frá störfum í desember síðastliðnum eftir að hafa starfað sem dómari í ensku úrvalsdeildinni um árabil. Hann lenti fyrst í vandræðum þegar myndband af honum birtist á netinu þar sem hann kallaði Jurgen Klopp, þáverandi knattspyrnustjóra Liverpool, ljótum nöfnum. Aðeins tveimur dögum síðar birtist annað myndband á netinu þar sem Coote sást sjúga kókaín á hóteli í ferð á vegum UEFA. Fyrir vikið fékk hann viðurnefnið „Cocaine Coote“ í breskum fjölmiðlum. Þegar rykið fór að setjast nokkrum vikum síðar steig Coote sjálfur fram, greindi frá því að hann væri samkynhneigður og hefði átt í erfiðleikum andlega sem leiddu hann til eiturlyfjanotkunar. Coote var rekinn úr ensku úrvalsdeildinni og dæmdur í átta vikna bann frá dómarastörfum þar í landi. Auk þess var hann dæmdur í bann af UEFA frá öllum dómarastörfum, sem gildir til 30. júní á næsta ári. Hann hafði mögulega hugsað sér að taka þá aftur upp flautuna, en úr því verður augljóslega ekki ef hann er dæmdur fyrir að framleiða barnaníðsefni.
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Fleiri fréttir Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Sjá meira